154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í loftslagsmálum og áhrif hérlendis.

[10:51]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Fyrr í vikunni féll dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í máli samtakanna Loftslagsfrúnna Schweiz, sem samanstanda af u.þ.b. 2.000 svissneskum konum. Konurnar kærðu svissnesk stjórnvöld fyrir að hafa brotið á réttindum þeirra samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu með aðgerðaleysi gegn loftslagsbreytingum. Byggði dómurinn niðurstöðu sína m.a. á því að stjórnvöld séu bundin af Parísarsamkomulaginu og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum á sviði loftslagsmála og með því að uppfylla ekki skyldur sínar samkvæmt samkomulaginu hafi ríkið ekki sinnt jákvæðum skyldum sínum samkvæmt mannréttindasáttmálanum. Dómurinn snýst því að miklu leyti um að stjórnvöld hafi ekki náð eigin markmiðum og skuldbindingum og að með því hafi stjórnvöld brotið mannréttindi sem fólk á tilkall til.

Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er komin langt yfir síðasta söludag enda hefur hún ekki verið uppfærð á þessu kjörtímabili. Losun á beinni ábyrgð stjórnvalda, svokölluð samfélagslosun, jókst á milli áranna 2020 og 2021 og stóð í stað á milli 2021 og 2022. Útlit er fyrir að ekki einu sinni helmingur þess samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda sem ríkisstjórnin stefnir að fyrir lok áratugarins náist með núverandi aðgerðum. Framreikningur bendir til að samdráttur í losun verði 24% árið 2030 á meðan stjórnarsáttmálinn talar um 55% sjálfstætt markmið. Ríkisstjórnin hefur sett sér markmið í loftslagsmálum sem ganga ekki nógu langt, en ekki nóg með það, hún nær ekki einu sinni sínum eigin duglausu markmiðum.

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Í ljósi þess að ríkisstjórnin er ekki að ná settum markmiðum sínum, sem þó eru allt of metnaðarlaus, hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af því að nýfallinn dómur Mannréttindadómstóls Evrópu geti haft afleiðingar hér á landi?