dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í loftslagsmálum og áhrif hérlendis.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina þó svo að það verði að viðurkennast að það sem hv. þingmaður fór hér með varðandi loftslagsmálin er kannski ekki alveg eitthvað sem maður skrifar upp á. En við höfum kannski ekki tíma til þess að ræða það í þessum stutta fyrirspurnatíma.
Út af þessum dómi sem Mannréttindadómstóllinn kemur með verð ég bara að segja, þar sem ég hef barist fyrir mannréttindum alla tíð og gerði það sérstaklega í stól utanríkisráðherra — og það er af nógu að taka þegar kemur að mannréttindum. Ég mun aldrei gleyma því þegar Maria Ressa, sem seinna fékk Nóbelsverðlaun, kom á skrifstofuna til mín á Rauðarárstíginn og þakkaði mér fyrir það að hún væri á lífi vegna þess að hún taldi að framganga okkar Íslendinga í mannréttindaráðinu hefði gert það að verkum að stjórnvöld treystu sér ekki til að gera það sem hún taldi að þau hefðu verið vís til að gera. Ég fékk sömuleiðis heimsókn frá konu í Sádi-Arabíu sem átti systur sem fór í fangelsi vegna þess að hún keyrði bíl án þess að karlmaður væri með. Hún þakkaði mér sömuleiðis fyrir framgöngu okkar sem hún sagði að hefði skipt mjög miklu máli. Þannig að þegar kemur að mannréttindum, eitthvað sem má skilgreina sem mannréttindi, þá eru alveg næg verkefni. Ég held að flestir geri það.
Loftslagsmálin eru gríðarlega mikilvæg umhverfismál og við erum auðvitað að skoða þennan dóm sem er nýfallinn og er langur og er ekki einróma nema að einu leyti. Ég er með ákveðnar efasemdir um hvort að það hjálpi málefninu þegar menn fara, við getum sagt út fyrir hið hefðbundna (Forseti hringir.) þegar kemur að mannréttindum.