154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í loftslagsmálum og áhrif hérlendis.

[10:55]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég myndi þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið ef hann hefði svarað spurningunni sem varðar það hvort hann hafi áhyggjur af því eða telji að þessi dómur Mannréttindadómstóls Evrópu, sem við höfum sannarlega skuldbundið okkur til að fylgja, muni hafa áhrif hér á landi. Það er áhugavert að heyra hæstv. ráðherra skreyta sig með afrekum úr öðru ráðuneyti en ræða ekki um fyrirætlanir sínar í núverandi ráðuneyti. Þær hafa hins vegar verið nokkuð ljósar og varða kannski fyrst og fremst auknar virkjanir. Þá langar mig bara að nefna að virkjanir eru langtímaverkefni. Megnið af orkuþörfinni sem hefur verið nefnd í þessari umræðu byggir á tækni sem kemur ekki til sögunnar fyrr en 2040.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, auk þess að ítreka fyrri spurningu mína: Hvaða aðgerða má vænta frá þessari ríkisstjórn sem taka ekki ár eða áratugi í framkvæmd heldur skila samdrætti í losun strax?