154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í loftslagsmálum og áhrif hérlendis.

[10:57]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bara hvetja hv. þingmann til að spyrja út í þessi mál og þakka fyrir fyrirspurnina. Ég hef fengið lítið af fyrirspurnum og lítið af sérstökum umræðum. Ég hvet bara hv. þingmann til dáða því að auðvitað erum við ekki að klára hér á nokkrum mínútum að ræða þessa stóru málaflokka. Ég hvet hv. þingmann til að koma með fyrirspurnir og taka þessi mál upp. Glaður skal ég svara því og því meira því betra. Málið er stórt þegar kemur að aðgerðaáætlun. Við höfum unnið mjög lengi að henni með mjög mörgu fólki sem á að framkvæma þetta. (Gripið fram í.) Það er algjörlega rangt hjá hv. þingmanni að halda því fram að ekki sé verið að gera neitt til að draga úr losun. Það má bæði nefna … (Gripið fram í.) — Af því að hv. þingmaður spyr um það þá vitum við hvað við erum að gera í orkuskiptum varðandi bíla sem er stærsti þátturinn. Við erum sömuleiðis að vinna með sjávarútveginum að því að draga úr losun. Við erum að tala um F-gösin og erum að ná eftirtektarverðum árangri þar. Við erum að vinna með öllum atvinnugreinum að því að draga úr losun. Ég ætla ekkert að fara að túlka þennan dóm hér vegna þess að við höfum ekki skoðað hann en ég skal glaður ræða hann. Það er reyndar komin fyrirspurn í þinginu (Forseti hringir.) frá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur sem ég vonast til að geta svarað sem fyrst. En ég held að allir skilji að menn þurfa einhvern tíma til að fara yfir þennan 260 bls. dóm.