ný búvörulög.
Frú forseti. Eitt allra fyrsta málið sem ný ríkisstjórn og nýr verkstjóri ríkisstjórnarinnar fær í fangið skiptir bændur og fólkið í landinu gríðarmiklu máli og getur haft mikil áhrif á kjör bænda og verðið á þeim matvælum sem við kaupum úti í búð. Fyrir páska voru samþykkt búvörulög af meiri hlutanum hér á Alþingi. Þar var helstu vörn neytenda og bænda gegn ofríki einokunar og verðsamráðs ýtt til hliðar með því að kippa samkeppnislögum úr gildi. Venjulegar samkeppnisreglur gilda núna ekki um starfsemi stórra fyrirtækja í landbúnaði. Þau mega núna að hafa með sér samráð um verð og verkaskiptingu.
Breytingarnar heimila líka öllum þessum aðilum að sameinast í eitt stórt einokunarfyrirtæki ef mönnum sýnist svo. Þetta þýðir í reynd að Kaupfélag Skagfirðinga, SS, Mata-fjölskyldan og fleiri mega framvegis eiga með sér samráð, sams konar samráð og Samskip og Eimskip hafa fengið milljarða sektir fyrir vegna tjóns almennings sem metið er á rúma 60 milljarða. Ólöglegt samráð er orðið löglegt á þessum markaði og Samkeppniseftirlitinu gert að hætta að skipta sér af því sem þar fer fram. Það sem er glæpur á flestum mörkuðum er núna fullkomlega löglegt þegar um er að ræða kjöt og mjólk. Frjálsri og eðlilegri samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur og bændur er nú ofur einfaldlega slátrað. Þetta hefur eðlilega verið gagnrýnt harðlega af t.d. Alþýðusambandinu, Neytendasamtökunum, Félagi atvinnurekenda, Samkeppniseftirlitinu og núna síðast sjálfu matvælaráðuneytinu. Matvælaráðuneyti hefur mótmælt þessum vinnubrögðum meiri hluta atvinnuveganefndar harðlega í bréfi. Gagnrýnt er að málið tók algerum eðlisbreytingum í skjóli nætur án þess að ráðuneytið eða hagsmunaaðilar fengu að gera athugasemdir eða segja sitt. Ráðuneytið efast um að þetta standist EES-reglur. Einnig hefur verið gagnrýnt að lögmaður þeirra sem mestra hagsmuna eiga að gæta í málinu, stóru fyrirtækjanna sem nú eru undanþegin heiðarlegri og eðlilegri samkeppni, aðstoðaði við að skrifa þessar umdeildu breytingar.
Hvað ætlar nýr verkstjóri ríkisstjórnarinnar að gera til að bregðast við þessari hörðu gagnrýni á vinnubrögð þingmeirihlutans (Forseti hringir.) af sjálfu matvælaráðuneytinu? Voru vinnubrögðin í lagi? Þurfum við ekki að fella úr gildi þessi ólög bændum og almenningi í landinu til heilla?