ný búvörulög.
Frú forseti. Þá vitum við það. Formaður Sjálfstæðisflokksins, sem stundum talar um samkeppni, frjálsa og eðlilega samkeppni, finnst bara ofur einfaldlega að samkeppni, frjáls og eðlileg samkeppni, eigi bara stundum ekki við. Nýr verkstjóri ríkisstjórnarinnar gefur ekkert fyrir þá gagnrýni sem fram hefur komið á vinnubrögð Alþingis í þessu máli, af sjálfu matvælaráðuneytinu, af fráfarandi formanni Bændasamtakanna, harðri gagnrýni þaðan, gerir ekkert með gagnrýni Alþýðusambandsins, VR eða fleiri stórra aðila. Rökin eru þau að samkeppnin kemur að utan gagnvart bændum. En þau fyrirtæki sem núna eru undanþegin samkeppnislögunum eru sjálf að flytja inn þessar landbúnaðarafurðir. Það er því verið að verja þessi fyrirtæki gegn samkeppni frá þeim sjálfum. Svo einfalt er það.
Mig langar að spyrja: Tekur hæstv. forsætisráðherra undir að þetta hafi verið eðlileg vinnubrögð og úr því að svo er, er þá ekki bara best að stíga skrefið til fulls og afnema samkeppnislög á fleiri mörkuðum? Er ekki bara ofur einfalt, með vísan í öll þau rök sem hæstv. forsætisráðherra kom hér með, að hafa hér bara einn banka, (Forseti hringir.) eitt tryggingafélag, eina matvöruverslun, hafa bara eitt sameinað stórt fyrirtæki á hverjum markaði fyrir sig?