154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[11:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Eins og segir hér er verið að koma til móts við ákveðna kjarasamninga. En mig langaði til að beina athyglinni að 6. kafla í greinargerðinni sem fjallar um mat á áhrifum. Það er einföld spurning í rauninni, þetta þarf ekki að vera neitt rosalega langt: Finnst hæstv. fjármálaráðherra þessi greining á mati á áhrifum, bæði á hagkerfið, lífeyrissjóði, þjóðhagsleg áhrif, áhrif á stjórnsýslu og sérstaklega áhrif á ríkissjóð boðleg?