154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar.

913. mál
[12:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar, sem kalla má úrelt lög.

Með frumvarpinu er lagt til að felldir verði brott nítján lagabálkar á sviði fjármálamarkaðar. Viðkomandi lagabálkar eiga ekki lengur við, ýmist sökum breyttra aðstæðna, vegna þess að hlutverk þeirra var afmarkað í tíma eða sökum þess að fyrirhugaðar ráðstafanir komu ekki til framkvæmda. Að óbreyttu standa þeir áfram í lagasafninu að þarflausu. Lögin eru í köflum lagasafnsins um verðlagsmál og efnahagsráðstafanir, ríkisábyrgðir, einstakar tegundir skatta og gjalda, lífeyris- og eftirlaunaréttindi, Seðlabanka, fjármálafyrirtæki og verðbréfaviðskipti, ýmsar lánastofnanir, húsnæðislán, útgerð og félög með takmarkaðri ábyrgð. Dæmi um lög sem lagt er til að falli brott eru lög um Fjárfestingarfélag Íslands hf., nr. 46/1970, en það félag er ekki lengur til, lög um nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf., nr. 119/1985, en nefndin skilaði skýrslu sinni og lauk störfum í nóvember 1986, og lög um heimild til fjárhagslegrar fyrirgreiðslu úr ríkissjóði í tengslum við málshöfðun fyrir erlendum dómstólum vegna íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana erlendra stjórnvalda á tímabilinu 1. október til 1. desember 2008, nr. 172/2008, en ekki kom til málshöfðunar á grundvelli laganna.

Virðulegi forseti. Frumvarpinu er ætlað að gera lagasafnið aðgengilegra og fyrirbyggja mögulega óvissu um gildandi rétt. Á undanförnum árum hefur bæst verulega við þann fjölda lagabálka sem eru á forræði fjármála- og efnahagsráðherra. Ég tel því mikilvægt að reglulega sé lagt mat á hvort tilefni sé til að fella brott eitthvað af gildandi lögum.

Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.