breyting á ýmsum lögum á fjármálamarkaði.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á fjármálamarkaði. Frumvarpið felur í sér ýmsar lagfæringar á 16 lagabálkum á fjármálamarkaði. Meiri hluti þeirra breytinga sem lagðar eru til snýr að því að leiðrétta vísanir milli ákvæða, skýra og samræma hugtakanotkun, fella brott úrelt ákvæði og treysta heimildir til að innleiða EES-reglugerðir.
Tveimur breytingum í frumvarpinu er ætlað að mæta gagnrýni frá fjármálafyrirtækjum um óþarflega íþyngjandi reglur. Önnur breytingin lýtur að ákvæði í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem felur í sér að lán og sambærileg viðskipti við allstóran hóp sem tengist fjármálafyrirtækjum þurfi að fara fyrir stjórn og vera tilkynnt Fjármálaeftirlitinu. Í frumvarpinu er þess í stað gert ráð fyrir því að fjármálafyrirtæki skuli varðveita gögn um viðskipti við þennan hóp og gera þau aðgengileg Fjármálaeftirlitinu óski það eftir því, sem samræmist Evrópureglum um þetta efni. Gert er ráð fyrir því að áfram verði mælt fyrir um það í lögunum að viðskipti við stjórnar- og starfsmenn og tengda aðila skuli lúta sömu reglum og viðskipti við almenna viðskiptamenn.
Hin breytingin lýtur að áskilnaði um að starfsmenn verðbréfafyrirtækja sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi eða veita fjárfestingarráðgjöf skuli hafa verðbréfaréttindi. Fjármálaeftirlitinu er nú við sérstakar aðstæður heimilt að veita allt að sex mánaða frest frá kröfunni fyrir nýja starfsmenn og starfsmenn sem færast til í starfi. Fjármálafyrirtæki hafa gagnrýnt að aðeins sé unnt að veita sex mánaða frest því að jafnaði líður ár milli prófa til að öðlast verðbréfaréttindi. Því er óvíst að nýr starfsmaður eða starfsmaður sem færist til í starfi geti uppfyllt kröfuna innan sex mánaða. Til að mæta þeirri gagnrýni er lagt til að Fjármálaeftirlitinu verði heimilað að veita allt að árs frest.
Önnur breyting í frumvarpinu, sem tekur mið af ábendingu frá Eftirlitsstofnun EFTA, getur á móti aukið lítillega reglubyrði banka og annarra lánastofnana. Hún er sú að lánastofnanir þurfi að vakta og tilkynna Fjármálaeftirlitinu að eigin frumkvæði um breytingar á nánum tengslum sínum við aðra aðila, en með nánum tengslum er átt við yfirráðatengsl eða 20% eða meiri hlutdeild í atkvæðisrétti eða eigin fé fyrirtækis. Upplýsingar um náin tengsl lánastofnana við aðra aðila gagnast Fjármálaeftirlitinu við eftirlit með lánastofnunum.
Virðulegi forseti. Samþykkt frumvarpsins er til þess fallin að gera lög skýrari og aðgengilegri og er liður í því að fullnægja skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum sem og greiða fyrir þátttöku íslenskra fyrirtækja í hinum sameiginlega markaði Evrópska efnahagssvæðisins. Hún kemur einnig til móts við gagnrýni fjármálafyrirtækja um óþarflega íþyngjandi reglur.
Ég legg því til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar sem og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.