skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og óska honum velfarnaðar í nýju ráðuneyti og hlakka til samstarfsins. Mig langar að spyrja nánar út í grænbókarvinnuna sem líkt og fram kom í máli ráðherrans er hafin og ég held að skipti máli fyrir okkur hér á þingi og inni í efnahags- og viðskiptanefnd að vita af og vita hvar er stödd, m.a. þegar við erum að fjalla um þetta mál því að mér finnst skipta máli að reyna að vinna hlutina í réttri röð og a.m.k. ekki í mótsögn við sjálfa sig. Þess vegna tel ég að hér þurfi að vanda mjög til verka vegna þess að grænbókarvinnunni er ekki lokið og vil því nota tækifærið hér og spyrja hæstv. ráðherra, sem talaði um að þetta hefði tekið langan tíma síðast, hvort hann viti hvenær megi vænta þess að grænbókin liggi fyrir, því að ég held að það myndi hjálpa til og gagnast inn í þetta mál en auðvitað líka bara almennt að fá fram þær upplýsingar sem þar er verið að vinna að.