154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

916. mál
[13:15]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og vil taka undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að vanda til verka. Það er mjög mikilvægt að fara varlega þegar við erum að fjalla hér um lífeyriskerfið, alveg með sama hætti og við ræddum hér í fyrra frumvarpi þar sem við vorum að heimila lífeyrissjóðunum að taka með meiri og skýrari hætti þátt í uppbyggingu á leiguhúsnæði. Hér er meira verið að horfa til frelsis einstaklingsins sem á sína séreign og eins og er alveg ágætlega útskýrt í frumvarpinu, og ágætlega líka farið yfir umsagnir sem ekki eru allar jákvæðar, þá er þetta eitthvað sem mér finnst vera mikilvægt að fari hér inn í þinglega meðferð.

Spurt er og hv. þingmaður spyr: Hvar er staðan stödd í grænbókarvinnu um lífeyrissjóðina? Ég nefndi hér áðan að einhver síðasta endurskoðun, ef ég man rétt, hefði tekið sjö eða átta ár og það er vont ef ekki er hægt að breyta á því tímabili af því að það fari fram grænbókarvinna. Það væri ekki gott og við höfum auðvitað gert fjölmarga hluti hér á síðustu árum sem ég tel að hafi verið til verulegra bóta sem margir aðilar sem hér veita neikvæðar umsagnir voru líka á móti á sínum tíma, alla vega framan af málinu, sem hafa síðan reynst mjög vel. Ég verð hins vegar að viðurkenna að þar sem ég hef nú bara nýlega tekið við þessu starfi þá hef ég ekki verið upplýstur nákvæmlega um hvar vinnan við grænbókina er stödd og hef bara þær upplýsingar úr samstarfi innan ríkisstjórnar að við vorum í það minnsta orðin nokkuð óþolinmóð að það væri ekki hægt að koma henni hraðar af stað og á dagskrá í fyrra og hittiðfyrra.