breyting á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði. Frumvarpið er byggt á vinnu nefndar sem skipuð var fulltrúum frá samtökum aðila vinnumarkaðarins en megintilgangur þess er m.a. að styrkja samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins við að sporna gegn brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði sem og að styrkja samstarf þeirra aðila sem fara með opinbert eftirlit á vinnumarkaði.
Vinnumarkaðurinn hér á landi er vel skipulagður með öflugum samtökum launafólks og atvinnurekenda sem semja sín á milli í kjarasamningum um laun og önnur starfskjör starfsmanna sem eru þátttakendur á innlendum vinnumarkaði sem og um aðra þætti er varða hagsmuni launafólks og atvinnurekenda.
Í frumvarpinu er lagt til að byggt verði ofan á þennan grunn og m.a. gert ráð fyrir að sett verði á laggirnar sérstök samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði en sambærileg nefnd hefur gefið góða raun í Noregi. Gert er ráð fyrir að í nefndinni eigi fast sæti þeir ráðherrar sem fara hverju sinni með vinnumál, skattamál og ákæruvald, auk forsætisráðherra sem og fulltrúa frá samtökum aðila vinnumarkaðarins, Útlendingastofnun og þeim aðilum sem fara með opinbert eftirlit á vinnumarkaði. Miðað er við að verkefni nefndarinnar verði að koma með tillögu að stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda hvað varðar áherslur og aðgerðir gegn brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði. Er þannig gert ráð fyrir að nefndin skuli afhenda ráðherra tillögu sína innan árs frá alþingiskosningum hverju sinni en slíkt þykir mikilvægt þannig að hver ríkisstjórn hafi tækifæri til að marka sér stefnu og grípa til nauðsynlegra aðgerða innan hvers kjörtímabils.
Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að með sérstökum samningum verði komið á fót samstarfsvettvangi opinberra eftirlitsaðila á innlendum vinnumarkaði. Fyrsti samningur þess efnis milli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, Skattsins, Vinnueftirlits ríkisins og Vinnumálastofnunar hefur þegar verið undirritaður og var það gert í nóvember 2019.
Í frumvarpinu er hins vegar lagt til að lögfest verði að lögreglustjórar, Skatturinn og Vinnueftirlit ríkisins skuli gera með sér slíkan samning og að Vinnueftirlit ríkisins skuli veita á vettvanginum forystu en í því sambandi er m.a. gengið út frá því að Vinnueftirlitið hafi forgöngu um að umræddir aðilar geri með sér framangreindan samning. Er þetta lagt til þar sem mikilvægt þykir að binda í lög samvinnu þeirra opinberu aðila sem fara með valdheimildir í tengslum við eftirlit á vinnumarkaði í því skyni að efla samstarf þeirra og efla þar með einnig eftirlit á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu eru einnig lagðar til breytingar á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum þar sem gert er ráð fyrir að auknar verði heimildir Vinnueftirlitsins til að breyta viðurlögum vegna brota gegn tiltækum ákvæðum laganna. Er þetta lagt til m.a. í því skyni að gera Vinnueftirlitinu kleift að bregðast á viðeigandi hátt við alvarlegum brotum á vinnustöðum sem geta ógnað öryggi og vellíðan starfsfólks en í því sambandi hefur m.a. verið litið til framkvæmdar annars staðar á Norðurlöndum.
Þá eru lagðar til frekari breytingar á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum með það að markmiði að auka öryggi við stjórn vinnuvéla utan sem innan vinnustaða og til að skýra betur hlutverk Vinnueftirlitsins við að skipuleggja og halda skrár á landsvísu um vinnuslys, atvinnusjúkdóma og eitranir þannig að unnt sé að vinna markvisst að því að koma í veg fyrir að slík tilvik endurtaki sig á sömu eða sambærilegum vinnustöðum.
Einnig er í frumvarpinu lagt til að flytja til Vinnueftirlits ríkisins það hlutverk sem Vinnumálastofnun hefur haft fram til þessa á grundvelli laga um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda, laga um starfsmannaleigur og laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Er þetta lagt til þar sem hlutverk Vinnumálastofnun hefur á undanförnum árum verið að breytast yfir í það að stofnunin veiti einstaklingum þjónustu í stað þess að stofnunin hafi eftirlit á vinnumarkaði. Þykir því flutningur eftirlits í tengslum við framangreinda löggjöf vera til þess fallinn að auka skilvirkni eftirlits á vinnumarkaði enda má ætla að í flutningnum felist mikilvæg samlegð við það eftirlit sem Vinnueftirlit ríkisins hefur nú þegar á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Líkt og ég gat um í upphafi er vinnumarkaðurinn á Íslandi vel skipulagður með öflugum samtökum launafólks og atvinnurekenda. En betur má ef duga skal líkt og nýleg dæmi sem upp hafa komið hér á landi hafa sýnt okkur fram á og í ljósi þeirra atburða, sem í raun enn standa yfir, legg ég áherslu á að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi sem allra fyrst þannig að við getum styrkt stoðirnar þegar kemur að aðgerðum í því skyni að sporna gegn atvinnustarfsemi á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég legg til að við lok þessarar umræðu verði frumvarpinu vísað til hv. velferðarnefndar.