154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði.

909. mál
[14:29]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu. Nýlega voru gerðar breytingar á norsku hegningarlögunum að frumkvæði ríkisstjórnar jafnaðarmanna undir forystu Jonasar Gahr Støre þar sem launaþjófnaður var gerður refsiverður. Í kjölfarið féll í fyrra, í janúar 2023, fyrsti refsidómurinn á grundvelli þessara laga. Það hefur lengi verið rætt um þetta hér á landi og verkalýðshreyfingin sett það á oddinn, hvort sem það væri þá gert í almennum hegningarlögum eða með einhvers konar févíti, að taka af meiri hörku á launaþjófnaði. Hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér í þessum efnum?