fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Ég fagna hér í upphafi áhuga hv. þingmanna á því að fara í andsvör við mig um þetta mál og bíð spenntur.
Frumvarpið er lagt fram í kjölfar þess að þann 7. mars síðastliðinn voru lagðar fram sameiginlegar aðgerðir ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára. Ein af þeim aðgerðum sem um ræðir er hækkun á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði í þremur áföngum, eða úr 600.000 kr. á mánuði, eins og upphæðin er í dag, upp í 900.000. kr. á mánuði. Í aðgerðunum er jafnframt gert ráð fyrir að hámarkgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði hækki í fyrsta áfanga úr 600.000 kr. á mánuði í 700.000 kr. og að sú breyting taki gildi frá og með 1. apríl 2024.
Í frumvarpi þessu er því lagt til að við lög um fæðingar- og foreldraorlof verði bætt við ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið verði á um að mánaðarleg hámarksgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði skuli aldrei nema hærri fjárhæð en 700.000 kr. vegna barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024.
Undanfarna daga hef ég orðið var við umræðu um að mikilvægt þyki að sú hækkun sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á mánaðarlegum hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði gildi ekki einungis fyrir foreldra barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. apríl 2024 og til loka ársins, heldur fyrir alla foreldra sem eru að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs óháð því hvenær börnin eru fædd, einungis að þau séu í foreldraorlofi eða fæðingarorlofi. Í ljósi þessarar umræðu tel ég rétt að taka það fram hér að foreldrar hafa 24 mánuði til að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs eftir að til réttarins stofnast við fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur.
Í því skyni að gæta jafnræðis milli foreldra þykir því mikilvægt að sömu reglur gildi hvað varðar mánaðarlegar hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði fyrir alla foreldra sem eignast, frumættleiða eða taka börn í varanlegt fóstur eftir tiltekið tímamark óháð því hvenær þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Því miðast breytingar á mánaðarlegum hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ávallt við tiltekið tímamark.
Með öðrum orðum miðast breytingar á mánaðarlegum hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ávallt við fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur eftir tiltekið tímamark til að koma í veg fyrir að foreldrar sem eignast börn á sama tíma fái misháar hámarksgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði eftir því hvenær þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Þetta getur verið mikilvægt t.d. sem hluti af jafnrétti kynjanna því að oft og tíðum taka konur fæðingarorlofið fyrr heldur en karlar.
Virðulegi forseti. Þar sem mikilvægt þykir að fjárhæðir á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof og laga um sorgarleyfi séu þær sömu á hverjum tíma er í frumvarpinu jafnframt gert ráð fyrir að við lög um sorgarleyfi verði bætt ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið verði á um að mánaðarleg hámarksgreiðsla til foreldris í sorgarleyfi skuli aldrei nema hærri fjárhæð en 700.000 kr. vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024.
Gert er ráð fyrir þessu til samræmis við hækkun á mánaðarlegum hámarksgreiðslum til foreldris í fæðingarorlofi. Er með þessu komið í veg fyrir að foreldrar sem verða fyrir barnsmissi á þeim tíma sem þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs verði fyrir tekjufalli við það að fá greiðslur í sorgarleyfi eftir barnsmissinn í staðinn fyrir að fá áframhaldandi greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
Framangreindum aðgerðum ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga er meðal annars ætlað að styðja við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila sem koma að gerð kjarasamninga um að leggja grundvöll að vaxandi velsæld, með auknum kaupmætti og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.
Þá er aðgerðunum jafnframt ætlað að treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna og stuðla að því að markmið fæðingarorlofskerfisins um samvistir barna við báða foreldra og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs nái fram að ganga. Í því skyni að viðhalda öflugu fæðingarorlofskerfi þykir því mikilvægt að mánaðarlegar hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra, sem nýta rétt sinn til fæðingarorlofs, haldi í við launaþróun í landinu þannig að foreldrar sjái hag í að fullnýta réttinn og takmarki ekki nýtinguna vegna of mikillar röskunar á tekjum sínum meðan á fæðingarorlofi stendur.
Þá stuðlar hækkun á hámarksgreiðslum til foreldra í sorgarleyfi að meginmarkmiðum laga um sorgarleyfi sem er meðal annars að veita foreldrum í sorgarleyfi svigrúm til sorgarúrvinnslu ásamt því að auka líkur á því að foreldrar í slíkri stöðu geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu að nýju.
Frú forseti. Mér er það sönn ánægja að mæla fyrir þessu mikilvæga frumvarpi hér á Alþingi og þeim breytingum sem það hefur í för með sér á sama tíma og ég legg mikla áherslu á að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi sem allra fyrst til hagsbóta fyrir foreldra og börn framtíðarinnar.
Ég vil taka það fram að þrátt fyrir að það tengist ekki efni þessa frumvarps beint þá vil ég geta þess að eftir sem áður að gert er ráð fyrir að fyrirhuguð breyting á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði til barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í fóstur varanlegt fóstur, þá annars vegar á árinu 2025 og hins vegar á árinu 2026, verði gerð með reglugerð á grundvelli 54. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof og er þess vegna ekki hluti af þessu frumvarpi.
Jafnframt er gert ráð fyrir að fyrirhuguð breyting á hámarksgreiðslum á grundvelli laga um sorgarleyfi til foreldra sem verða fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturláti á árunum 2025 annars vegar og 2026 hins vegar verði breytt með reglugerð á grundvelli 33. gr. laga um sorgarleyfi.
Frú forseti. Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.