fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Þegar gerðar eru umfangsmiklar breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni er hefð fyrir því að gildistaka miðist við fæðingardag barns. Hér er hins vegar frumvarp á ferðinni þar sem lagðar eru til mjög afmarkaðar og einfaldar breytingar sem snerta þá bara fjárhæð hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi. Frumvarpið er lagt fram í tengslum við kjarasamninga til að kaupa frið á vinnumarkaði og til að létta undir með foreldrum ungra barna núna þegar vextir eru hærri en nokkurs staðar í hinum vestræna heimi og þegar það hefur gengið verr hjá okkur að ná niður verðbólgu en alls staðar í kringum okkur. Þetta er staðan vegna efnahagsóstjórnar sem hér hefur ríkt og þetta er eitthvað sem heimilin í landinu finna fyrir og sem foreldrar ungra barna finna fyrir, óháð því hvort barnið fæðist 31. mars 2024 eða 1. apríl 2024, og ég hef gert ráð fyrir því að beita mér fyrir því á vettvangi velferðarnefndar að frumvarpinu verði breytt þannig að hækkun þaksins taki til allra foreldra sem fá greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði frá og með 1. apríl 2024. (Forseti hringir.) Vonandi verður hljómgrunnur fyrir því og vonandi getum við treyst því að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og hreyfingin hans komi með okkur í það. (Forseti hringir.) Hæstv. ráðherra færði hins vegar rök gegn slíkri breytingu hér áðan og taldi einhvers konar jafnræðisrök mæla gegn slíkri breytingu (Forseti hringir.) og mig langar að biðja ráðherra um að útskýra betur þessar röksemdir fyrir þingheimi.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er ein mínúta.)