fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það eina sem ég hef við svör mín að bæta frá því áðan við hv. þm. Jóhann Pál Jóhannsson er að þær hækkanir sem venjulega verða við áramót búa til skurðpunkt með sama hætti og þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Við værum því í mínum huga að gera breytingar frá því sem verið hefur og það eru þær ráðleggingar sem ég hef fengið í ráðuneytinu, að rétt sé að gera þetta með þessum hætti til að tryggja jafnræði á milli fólks. Ég skil mjög vel að þegar manneskja eignast barn daginn áður en einhverjar breytingar fara í gegn er það auðvitað svekkjandi. En einhvers staðar verður skurðpunkturinn að vera, (Forseti hringir.) það er alveg ljóst, og hækkunin myndi náttúrlega aldrei verða hvort eð er fyrr en 1. apríl. Það er alveg ljóst. Þannig að ef viðkomandi fæðir fyrir 1. apríl þá væntanlega myndi sú hækkun ekki taka gildi fyrir viðkomandi einstakling.