154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[14:59]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni umræðuna um þetta í dag. Ég vil taka undir mikilvægi fæðingarorlofskerfisins sem lykilþáttar í okkar velferðarkerfi til að bæði auka samvistir fjölskyldna og barna og rétt barna til að vera með báðum foreldrum, en ekki síður út af jafnrétti kynjanna. Þar voru gerðar mjög góðar breytingar í tíð ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í hennar fyrsta ráðuneyti. Að lokum vil ég síðan segja að þær aðgerðir sem koma í gegnum kjarapakka ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga eru einmitt þannig úr garði gerðar að þær mæta sérstaklega vel lágtekjuhópum þó að þær nýtist upp allan tekjuskalann, vegna þess að barnafjölskyldurnar njóta þeirra líka. (Forseti hringir.) Þar er náttúrulega bæði um að ræða barnabætur, gjaldfrjálsar skólamáltíðir og fleiri aðgerðir sem ráðist verður í og við hlökkum til að koma til framkvæmda.