fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju með þetta góða frumvarp sem er mikilvægt og mjög gott. Þetta kemur í kjölfar kjarasamninga og verð ég að hafa smá inngang að því. Almennt finnst mér að ríkið eigi ekki að vera mikill þátttakandi í slíkum gjörningum en í undantekningartilfellum getur verið full ástæða til þess og eins og staðan er í íslensku samfélagi út frá verðbólgu og vöxtum þá var það svo. Þetta var gott skref sem ríkisstjórnin steig inn í þetta og hérna sjáum við fallegustu birtingarmynd þess, að hækka þakið hvað varðar fæðingarorlofsgreiðslur. Því styð ég þetta mál eindregið.
Ég heyri hér þau andsvör sem fram komu til ráðherrans. Nú sit ég í hv. velferðarnefnd og tek einmitt undir það sem hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir kom inn á varðandi þetta með þakið. Ég heyrði að félagi minn í nefndinni sagði það sama; hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson talaði einmitt líka um það að vilja beita sér fyrir breytingu á þessu inni í nefndinni. Ég ætla bara að fara með honum í lið. Við verðum saman í liði í því að skoða þessa þætti því að ég tek undir það að einmitt í ljósi þeirra aðstæðna og í ljósi þess af hverju við erum að gera þetta á þessum tímapunkti sé ástæða til að skoða hvort þessi breyting eigi að birtast með aðeins öðrum hætti en breytingar sem gerðar hafa verið á þessu kerfi hingað til. Yfirleitt hefur verið, eða ég held að alltaf hafi verið miðað við fæðingardag og þarna sitjum við uppi með það að einhvers staðar þurfa að vera lagaskil og það kann alltaf að vera erfitt að meta það. Ég heyrði rök ráðherrans hér áðan en ég held að við í hv. velferðarnefnd verðum að skoða þetta vel. Ég sé ekki betur en að mörg rök hnígi að því að við eigum einmitt ekki að miða við fæðingardag í þessu tilfelli heldur bara við þann tíma þegar fólk er í fæðingarorlofi þannig að þessi hækkun á þakinu komist strax í vasa þeirra sem eru svo lánsamir að vera að njóta samvista við nýfædd börn sín.
Að því sögðu, virðulegur forseti, finnst mér ég ekki geta látið hjá líða að tala aðeins almennt um þetta kerfi. Það er einmitt hárrétt sem hæstv. ráðherra kom inn á að í desember 2020 lengdum við fæðingarorlofið. Ég var ötull stuðningsmaður þess. Ég var sammála hæstv. ráðherra um að við færum í það að gera skiptinguna milli kynjanna eða foreldranna nánast jafna. Ég held að þetta hafi verið ofboðslega mikilvægt skref og gott því að þetta er auðvitað risastórt jafnréttismál, bæði út frá jöfnum launum kynjanna og atvinnutækifærum á vinnumarkaði þar sem alltaf hefur hallað á konur og gerir enn, þó að Ísland sé jú vissulega ákveðin paradís í jafnréttismálum. En það er líka jafnrétti fyrir feður að fá tækifæri til þess að tengjast og sinna börnunum sínum. Ég sagði einmitt við þá umræðu að það væri algjörlega nauðsynlegt að næsta skref þegar kæmi að breytingu á Fæðingarorlofssjóði væri að hækka þakið. Við sáum svo skýr merki þess hvað gerðist hér eftir hrun þegar þakið var lækkað. Þá fækkaði feðrum sem ákváðu að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs og það er slæmt. Þetta er því mikilvægt skref sem ég styð heils hugar.
Ég ætla líka að fá að taka undir það hversu mikilvægt það er fyrir samfélag okkar allt að ekkert bil verði þegar fæðingarorlofi sleppir. Þá þarf hið opinbera, í þessum tilfellum sveitarfélögin sem hafa tekist á hendur að reka leikskóla eða bjóða upp á slíka þjónustu, jafnvel með niðurgreiðslum til einkarekinna leikskóla, að tryggja það að leikskólar geti tekið á móti börnum þegar fæðingarorlofinu sleppir. Það er ekki einu sinni nóg að segja að barnið fái inngöngu á einhverjum tímapunkti, það þarf líka að tryggja að sú þjónusta, bæði við barnið og foreldrana, sé stabíl þannig að ekki komi til þess að foreldrar fái sífellt einhverjar beiðnir um það að sækja barnið fyrr eða að barnið geti ekki verið í vistun ákveðna daga vegna manneklu eða þess háttar. Þetta er ofboðslega stórt mál og þarna þurfa sveitarfélögin að gyrða sig í brók á sama tíma og við erum að gera það núna með því að hækka þakið í Fæðingarorlofssjóðnum.
Ég get ekki heldur látið hjá líða að fara aðeins yfir það sem ég gerði að sérstöku umtalsefni í eldhúsdagsumræðum við lok síðasta þings þegar ég benti á það að árið 1976, þegar ég fæddist, var fæðingartíðnin, þ.e. fjöldi barna á hverja konu, 2,5. Árið 2000, þegar ég fæddi mitt fyrsta barn, var hún komin niður í tvö börn á konu. Árið 2022, sem ég held að séu nýjustu tölur sem við eigum um þetta, vorum við í sögulegu lágmarki þar sem fæðingum hafði aldrei fækkað meira á milli ára og vorum við komin niður í 1,6 börn. Það er ágætt að hafa í huga að til að viðhalda mannfjölda þarf hver kona að eignast 2,1 barn. Þetta er alveg ofboðslega stórt efnahagsmál til framtíðar. Þjóðin er að eldast og við njótum þeirra forréttinda að lifa lengur og lengur en til þess þarf líka að fjölga ungviðinu okkar og þeim sem koma inn á vinnumarkaðinn. Þetta er því ofboðslega stórt efnahagsmál sem skiptir miklu máli. Ég er ekki að fara sömu leið og heyra má suma pólitíkusa tala um annars staðar, að nú þurfi bara að skikka konurnar aftur heim til að eignast börn og sjá um heimilið. Það er alls ekki það sem ég er að segja. Ég er að segja að velferðarsamfélag, gott velferðarsamfélag eins og Ísland er, þarf að tryggja að umhverfið sé með þeim hætti að það hvetji til barneigna frekar en letji. Þar spilar auðvitað Fæðingarorlofssjóður gríðarstórt hlutverk og við sjáum hvað það hefur skipt miklu máli í velferð okkar og í jafnréttinu ef út í það er farið.
Aftur vil ég fagna þessu. Þetta er ofboðslega mikilvægt skref. Við tökum það í ákveðnum áföngum og ég tel fulla ástæðu til þess að við skoðum vel inni í velferðarnefnd hvort ekki sé ástæða í þessu tilfelli til að miða ekki við fæðingardag barns heldur eingöngu það að fólk sé í fæðingarorlofi á þeim tíma sem þessar breytingar eiga sér stað.