154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[15:16]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér heyrist við vera sammála um mikilvægi þess að skoða þennan vinkil um hvar lagaskilin liggja við þessa breytingu, sem felst í því að hækka þakið í 700.000. Mér fannst hæstv. ráðherra fara ágætlega yfir það áðan að það eru auðvitað alltaf einhverjar vangaveltur þegar kemur að lagaskilum. Samkvæmt hefðinni hefur það alltaf verið þannig að við miðum breytingar á þessu kerfi við fæðingardag barns. Það getur alveg verið erfitt eins og útskýrt hefur verið. Ég lenti sjálf í því á sínum tíma að eignast barn stuttu áður en breytingar áttu að verða á lögunum og það er það sem er. Það getur alltaf verið ósanngjarnt og leiðinlegt fyrir einhverja, en einhvers staðar verða lagaskilin samt að vera. Í þessu tilfelli finnst mér full ástæða til að skoða hvort þetta eigi að horfa öðruvísi við núna í ljósi þess að þessar breytingar eru að koma til vegna kjarasamningsviðræðna og vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í samfélaginu. Þannig finnst mér eðlilegt að við skoðum, hvort ekki sé rétt að þetta verði einmitt til þess að aðstoða það fólk sem er í fæðingarorlofi núna. Hv. þingmaður spyr hvort um það sé einhver sátt. Ég meina, þetta er það frumvarp sem kemur frá hæstv. ráðherra og kemur í kjölfar þessara viðræðna á vinnumarkaði. Eins og hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir kom inn á er þetta einn af þeim fyrirvörum sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins setti við málið. Nú kunna að vera á þessu einhver flækjustig og eflaust kostar þetta eitthvað aðeins meiri peninga. En ég segi það sem þingmaður og nefndarmaður í hv. velferðarnefnd að ég vil skoða það af mikilli alvöru hvort við náum ekki utan um það að gera þessa breytingu. Ég verð að viðurkenna varðandi hinar spurningar hv. þingmanns að ekki er verið að tala um að lækka þakið aftur, það er verið að hækka þakið til framtíðar og það stendur, en það er þó gert í ákveðnum skrefum með ákveðnum dagsetningum og hæstv. ráðherra ræddi það hérna áðan að hann hygðist gera það með reglugerðarbreytingu þannig að ekki þurfi að koma með frumvarp þess efnis inn í þingið þegar þar að kemur.