fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að fagna þessu frumvarpi sem fram er komið og hæstv. ráðherra fór yfir áðan og þeirri mikilvægu umræðu sem hefur átt sér stað hérna líka um kerfið, ekki bara þessa tilteknu breytingu heldur lýsir það líka hversu mikilvægt þetta kerfi og fæðingarorlofið er fyrir efnahag og framtíðarefnahag Íslands. Það er auðvitað hlutverk vinnumarkaðarins að semja um kaup og kjör en svo er það hlutverk okkar stjórnmálamannanna að tryggja að umgjörð launafólks og vinnumarkaðarins sé eins og best verði á kosið, þ.e. að laun fari ekki bara í skatta eða að stjórnvöld séu hér með of íþyngjandi regluverk, flæki fyrir atvinnulífinu eða ýti frekar undir verðbólgu. Þar líka á meðal þurfa stjórnmálamenn að tryggja jöfn tækifæri foreldra bæði í leik og starfi. Það gera stjórnvöld best með góðri umgjörð um skóla- og frístundastarf og svo bættri umgjörð um fæðingarorlof sem hefur vissulega tekið stórum mikilvægum breytingum á undanförnum árum og er þetta mjög gott og stórt skref sem ánægjulegt er að sjá stjórnvöld stíga, þannig að nú munu þessar greiðslur hækka, hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi, úr 600.000 kr. í 700.000 kr. Þetta hefur verið eitt af helstu stefnumálum Sjálfstæðisflokksins um árabil en hámarkið hefur staðið í stað síðan 2019 þrátt fyrir miklar launa- og verðlagshækkanir.
Eðlilega hafa vaknað spurningar um útfærslu á þessu tiltekna frumvarpi og við höfum farið svolítið í gegnum það hér í umræðunum og bæði fjallað um að þetta fyrirkomulag kunni að mismuna einhverjum og að annað fyrirkomulag kunni að mismuna öðrum hópum þannig að það er margt sem hv. velferðarnefnd þarf að skoða í framhaldinu en hæst heyrist auðvitað í þeim sem fæddu barn fyrir 1. apríl og eiga ekki rétt á þessari hækkun. Ég átta mig alveg á því að einhvers staðar þarf skurðpunkturinn að vera og einhver umræða um lagaskil þarf að vera en þetta finnst mér mikilvægt að nefndin skoði og í takt við þá umræðu sem hefur átt sér stað og þá fyrirvara sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gerði á þessu máli.
Ég heyri sjálf mjög hátt í kringum mig, af því að ég var fyrir stuttu síðan í orlofi og þekki því rosa vel til margra hópa sem eru í orlofi eða nýlega búnir í orlofi, að það er talsverð ólga í þessum hópi út af þessu útfærsluatriði og því vænti ég að þessi umræða muni eiga sér stað innan nefndarinnar. En útfærslan truflar mig svolítið á þessu frumvarpi, af því að t.d. í kynningu ríkisstjórnarinnar var talað um helmingshækkun til foreldra, þ.e. úr 600.000 í 900.000 kr. á mánuði til ársins 2026. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir þessari hækkun í lagatextanum heldur eins og kom fram í umræðum og í greinargerð með frumvarpinu þá mun hæstv. ráðherra setja reglugerð eins og heimilt er í 54. gr. laganna en eftir stendur þó 1. mgr. 24. gr. sem segir að hámark greiðslna sé 600.000 kr. og því hlýtur að koma til álita að fella það ákvæði brott ef um er að ræða reglugerðarheimild í 54. gr.
Þá verður líka að nefna að mögulega hefði farið betur á þessu fyrst farin var þessi leið, að setja bráðabirgðaákvæði, hvort það hefði þá ekki verið skynsamlegra að setja alla útfærsluna til ársins 2026 upp í bráðabirgðaheimild í lögunum, af því að ég velti því svoleiðis fyrir mér hvort það sé ekki ankannalegt að lögin kveði á um hámark en reglugerðin eitthvað allt annað og að hámarkið í reglugerðinni verði þá helmingi hærra en það sem kveðið er á um í lögunum. Þá er ég sérstaklega að velta fyrir mér sjónarmiðum um bara vandaða lagasetningu og skýrleika laga fyrir borgarana sem reyna að lesa sig í gegnum textann þegar þeir eru að reyna að átta sig á hvaða réttindi foreldrar hafa í fæðingarorlofi, þannig að mér finnst skipta gríðarlega miklu máli að það sé skýrleiki hér til staðar. Eins hefur þessi reglugerðarheimild verið til staðar í nokkur ár en samt sem áður hefur hámarkið ekki breyst frá 2019, þannig að ég velti því fyrir mér hversu virk þessi heimild hefur verið og hvers vegna það hafi þá ekki bara verið betra og farið betur á því að útfæra þetta í lögum.
Mig langar líka aðeins að ræða það sem maður veltir fyrir sér þegar maður skoðar þetta kerfi. Það er samspil hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi sem er sett með þessu þaki, 600.000 kr., og svo 80% þakinu á greiðslunum, því að mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns í fæðingarorlofi skal einungis nema 80% af meðaltali heildarlauna og þrátt fyrir hana, eins og ég segi, er kveðið á um hámarkið. Ég skil rökin að það þurfi á einhvern hátt að girða fyrir himinháar greiðslur og kannski að einhver með 4 milljónir á mánuði þurfi ekki að fá úr sameiginlegum sjóðum okkar alla þá upphæð, en hvers vegna þarf að setja bæði belti og axlabönd hér? Ég myndi telja að það ætti að vera nóg að treysta á annaðhvort. Ef kveðið er á um krónutölu þá ætti það að duga þannig að ég átta mig ekki alveg á því af hverju það þarf að hafa þetta 80% þak. En þetta er kannski eitthvað sem mætti ræða í nefndinni þó svo að það tengist ekki beint þessu tiltekna frumvarpi. En þetta veltur svolítið á því hvaða framtíðarfyrirkomulag við viljum hafa um þessi mál.
Fræðilega má líka alveg velta því upp hvort það myndi þjóna hagsmunum foreldra að greiðslurnar yrðu gerðar skattfrjálsar. Það er umræða sem má taka, hvort það væri þá hægt að sleppa því að hækka þakið en gera greiðslurnar skattfrjálsar, þannig að náir þú hámarkinu, 600.000 kr., þá er að sjálfsögðu og auðvitað tekinn tekjuskattur af þeim greiðslum og þá reynast launin í rauninni bara 440.000 þegar allt er dregið frá. Þessi umræða um hækkun verður alltaf hlutfallslega minni því meira sem þú færð og þjónar þá hagsmunum foreldra enn þá minna þegar þú ert kominn upp í þakið sem er 900.000, af því að þá fer meira og meira að tikka inn í skattinn þannig að þetta er líka eitthvað sem ég vona að nefndin taki til skoðunar og hafi þá hagsmuni foreldra að leiðarljósi.
Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór svo skemmtilega líka yfir það hagsmunamál okkar Íslendinga að við förum að hífa upp fæðingar hér á þessu landi sem hafa verið að lækka. Við þurfum að fjölga fæðingum og þetta er auðvitað ein leið, af því að við unga fólkið þekkjum það vel í umræðu í kringum okkur hversu mikil áhrif þetta tekjutap í fæðingarorlofi hefur á væntanlegar áætlanir um barneignir og ég skil það bara ofboðslega vel. Ég skil það vel að við erum búin að setja upp þetta kerfi sem snýst um jafnrétti kynjanna og að auka tækifæri kvenna til að vera virkar á vinnumarkaði en þetta er samt svo takmarkað. Það er margt sem þarf að skoða hérna í samspili við það.
Svo kom hv. þingmaður Bryndís Haraldsdóttir líka inn á að brúa bilið sem er auðvitað risastórt mál, og af því að við erum að tala hér sérstaklega um þennan tekjuþátt fæðingarorlofs þá auðvitað er raunveruleikinn sá að foreldrar eru kannski frekar að taka 50% fæðingarorlof til að lengja fæðingarorlof sitt til að brúa bilið, af því þeir fá ekki dagvistun eða leikskólapláss eða dagmóður eða -foreldri til að fylgjast með barni sínu á meðan þeir þurfa að vinna fyrir sér þannig að þá verður tekjutapið enn þá meira. Staðan er bara virkilega þröng á meðal ungs fólks, þannig að þetta er eitthvað sem þarf að skoða í heildarsamhenginu og ég er alveg sammála hæstv. ráðherra að sveitarfélögin þurfa vissulega að gyrða sig í brók. En auðvitað þarf að skoða þetta allt í heildarsamhenginu. Það þarf sem sagt að gera öllum kleift að taka orlofið til að byrja með og það gerum við með því að stíga þetta skref að hækka hámarksgreiðslur. En þetta er risastórt samspil og samhengi hlutanna hér.
Svo væri líka áhugavert að vita ef það væru einhverjar tölur og tölfræði til um það hversu margir foreldrar eru að ná þessu þaki, hámarki á greiðslum, bara til þess að hafa eitthvert samhengi um hversu vel það reynist að hækka þakið, eða hversu mörgum það mun hjálpa og hversu margir munu nýta þetta úrræði þannig að öll kostnaðargreining á þessu er auðvitað bara mjög mikilvæg í framhaldinu á þessu máli.
Við höfum stigið mjög stór og jákvæð skref í þessu kerfi og það er auðvitað mikilvægt að fagna því þegar verið er að gera jákvæðar breytingar. Eftir sem áður er það þó þannig að barneignir hafa neikvæð áhrif á tekjur mæðra en jákvæð áhrif á tekjur karla sem er ekki markmiðið með kerfinu. Kerfið á að vera að ýta undir báða og lyfta undir bæði konum og körlum og auðvitað öllum kynjum, því að jafnaði taka mæður lengra fæðingarorlof en feður enn þann dag í dag, þó svo að við höfum þröngvað í gegn lagasetningu sem handstýrir því hversu mikið fer á milli foreldra, sem er bara gott og vel og það var niðurstaðan. En á meðan kerfið er eins og það er þá hentar það mæðrum verr en feðrum.
Ég ætla bara að ljúka máli mínu hér með því að segja að þetta er gott skref. Við eigum auðvitað að róa öll í þá átt að jafna tækifæri foreldra á vinnumarkaði og með hærra þaki á fæðingarorlofsgreiðslunum erum við auðvitað að stíga stórt skref í þá átt. Árið 2026 verða greiðslurnar komnar upp í 900.000 á mánuði sem er fagnaðarefni og ég hlakka mjög til að fylgjast náið með því hvernig velferðarnefnd vinnur þetta mál áfram.