fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Í draumaheimi gætum við gert margar góðar breytingar á kerfinu. Bara til að nefna það þá eru auðvitað aðrar greiðslur, eins og þegar foreldrar eru í námi, það er ofboðslega lágt. Sjálf var ég í námi þegar ég átti fyrsta barnið mitt og það var bara mjög þröng staða. Ég veit að staðan hjá háskólanemum er mjög þröng og það er líka eitthvað sem þarf að líta til í framtíðinni. Og líka, eins og hv. þingmaður nefndi, með undanfara fæðingarorlofs þá færi auðvitað vel á því að við myndum skoða það einhvern tímann í náinni framtíð af því að það er raunveruleg áskorun að hífa upp fæðingartíðnina.
Hvað varðar lagaskýrleikann og hvernig útfærslan á þessari hækkun er þá held ég að það hefði verið hægt að útfæra þetta á annan máta. Þetta var lendingin í ráðuneytinu en mér finnst líklegt að þetta muni taka einhverjum breytingum í nefndinni, t.d. eftir að lagaskrifstofan hér er búin að fara yfir þetta. Við viljum auðvitað alltaf tryggja að hér fari í gegn mjög vönduð lagasetning og eitthvað sem er algerlega skýrt fyrir borgara þessa lands.
Bara til að nefna dæmi úr þessari löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof þá er auðvitað reiknireglan líka flókin, hvaða mánuði þú átt rétt á greiðslum og hvernig þetta er allt saman reiknað út. Það að við séum líka með 80 prósentin eins og við vorum að ræða og 600.000-þakið og allt þetta er ekki til þess fallið að auka skýrleikann í kerfinu. Öll þessi umræða er mikilvæg og ég vona að hún muni eiga sér stað inni í velferðarnefnd. Ég er að beina fullt af (Forseti hringir.) góðum hlutum til velferðarnefndar þó að ég sitji ekki þar inni sjálf en ég vona að þessir hlutir verði teknir til skoðunar þar.