fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki kynnt mér þær leiðir sem hafa verið farnar í Mosfellsbæ í þaula. Ég held að ástæðan fyrir því að Kópavogsleiðin hefur kannski verið mest í umræðunni sé að þar er lengst gengið í þessa átt, talsvert lengra heldur en gert hefur verið í Mosfellsbæ. Varðandi meðgönguorlofið þá fagna ég því að við séum sammála um það, ég og hv. þingmaður. Eins og hv. þingmaður nefnir var afstaða flokksins hugsanlega einhver önnur fyrir nokkrum árum en þá var líka annar þingflokkur hér fyrir Samfylkinguna. Það er nú bara þannig, flokkar breytast.
Ég man ekki hvað það var fleira en varðandi þessar breytingar sem verið er að gera á leikskólakerfum í mörgum sveitarfélögum þá er frumorsök þess einmitt þetta ófullkomna tekjulíkan. Það er ekki gert ráð fyrir rekstri leikskóla í lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Alþingi, sem er sá aðili sem fyrst og fremst mótar umgjörðina um sveitarfélög þegar kemur að tekjum þeirra, hefur einfaldlega ekki gert ráð fyrir leikskólum sem lögbundinni þjónustu sem þurfi að fjármagna. Það veldur því auðvitað að sveitarfélög úti um allt land og sérstaklega þessi stærstu eru bara í hrikalegu basli með að reka leikskóla og þá er gripið til ýmissa örþrifaráða. Sums staðar birtist þetta í hærri leikskólagjöldum, annars staðar í einhvers konar styttingu á þjónustutíma, enn annars staðar birtist þetta í löngum biðtíma eftir plássi. En ég held að það hvað vandinn er útbreiddur og á sér margar birtingarmyndir sýni okkur einmitt að (Forseti hringir.) þetta er kerfisbundinn vandi og ég held að við hér á Alþingi gætum gert ýmislegt (Forseti hringir.) til að laga hann.