fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekkert að nefna einhverja gullna tölu hér. Ég sagði að ég teldi að í tekjutengdu fæðingarorlofskerfi væri eðlilegt að vera bæði með ákveðið gólf og svo talsvert hærra þak heldur en við búum við í dag. Við lögðum til í okkar frumvarpi að það yrði hækkað strax upp í 800.000 kr. og hugsuðum það þá þannig að þaðan í frá myndi það fylgja launaþróun. En auðvitað veltur þetta allt á því líka hvað er til skiptanna hverju sinni. En það er skaðlegt út frá jafnréttissjónarmiðum að hafa þakið mjög lágt, eins og það er og hefur verið. Rétt eins og þegar kemur að tilfærslukerfunum almennt, velferðarkerfinu okkar, þá tel ég eftirsóknarvert að stuðningurinn sé fremur ríkulegur en það eru takmörk fyrir öllu. Ég ætla ekkert að nefna einhverja töfratölu hér þar sem ég tel að þakið ætti að vera. Ég held að hér sé verið að stíga mjög mikilvægt skref í rétta átt. Mér hefði þótt eðlilegra að það væri einhvers staðar í kringum milljónina frekar en 600.000 kr. á síðustu árum, þá sérstaklega einmitt vegna jafnréttissjónarmiða.