réttindagæsla fyrir fatlað fólk.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra sé tilbúinn að taka þetta mikilvæga mál til skoðunar vegna þess að ég tel að öðruvísi séum við í raun ekki að uppfylla samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem við fullgiltum fyrir að verða tíu árum síðan. Svo að það sé alveg skýrt þá finnst mér í raun ekki gott að það séu aðstandendur að sinna þessu hlutverki. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Hugmyndafræði samnings Sameinuðu þjóðanna, sem hæstv. ráðherra kom inn á hérna áðan, er að virða besta mögulega vilja viðkomandi og mamma þín veit alltaf best hvað þú átt að gera og það er ekki endilega gott að hafa hana í þessu hlutverki ef það stendur til að virða þinn besta mögulega vilja. Með fullri og einlægri virðingu fyrir öllum öðrum þá held ég ekki endilega að aðstandendur séu endilega best til þess fallnir að sinna þessu mikilvæga hlutverki. Þetta er líka ótrúlega mikilvægt réttindamál vegna þess að við erum allt of dugleg við að svipta fólk lögræði vegna þess að það eru ekki til vægari úrræði. (Forseti hringir.) Þess vegna er þetta mikilvægt, virðulegi forseti. Við erum allt of dugleg að taka af fólki löghæfið (Forseti hringir.) á Íslandi. Mér finnst það skelfilegt vegna þess að það gengur gegn samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þess vegna er mikilvægt að flýta þessari athugun hæstv. ráðherra.