154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

réttindagæsla fyrir fatlað fólk.

922. mál
[16:29]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félagsmálaráðherra fyrir hans framsögu. Þegar maður skoðar þetta mál þá finnst mér stóra málið í þessu vera hverjir eigi að gera hvað í framhaldinu, sú breyting sem er að eiga sér stað að réttargæslumennirnir verði hjá mannréttindastofnun og persónulegir talsmenn verði vistaðir hjá sýslumönnum. Mig langaði alla vega í minni fyrri ræðu, að fara aðeins yfir það sem snýr að mannréttindastofnun. Það stendur í greinargerðinni með frumvarpinu:

„Fyrirhugað er að réttindagæslumenn flytjist til nýrrar mannréttindastofnunar og að samningar og eftirlit með persónulegum talsmönnum flytjist til sýslumanna, samkvæmt frumvarpi forsætisráðherra til laga um Mannréttindastofnun Íslands (þskj. 242, 239. mál.). Er þessu frumvarpi ætlað að styðja við framangreindar breytingar.“

Síðan stendur hreinlega í frumvarpinu um mannréttindastofnun í 9. gr.: „Innan Mannréttindastofnunar Íslands skulu starfa réttindagæslumenn fatlaðs fólks.“ Þá spyr ég um samfelluna þarna á milli. Ég held að það verði tiltölulega létt að koma frumvarpinu um réttargæslumenn í gegnum nefndina og þingið en ég spyr um mannréttindastofnunina: Er hún að verða að veruleika? Ég hef upplifað það hér á þinginu að það er enginn sérstakur vilji hjá samstarfsflokkum Vinstri grænna að koma mannréttindastofnuninni á fót. Ég spyr: Er þetta þá ekki bara marklaust ef við klárum ekki málin samhliða?