154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

réttindagæsla fyrir fatlað fólk.

922. mál
[16:37]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er nú einfaldlega þannig að það er ekki rétt að þessar breytingar sem hér er kveðið á um í þessu frumvarpi hafi áður verið hluti af frumvarpi um Mannréttindastofnun Íslands. Þetta eru breytingar sem eru til viðbótar við þær breytingar sem eru lagðar til í frumvarpi um Mannréttindastofnun Íslands og er ætlað að styðja við það sem sett er fram þar. Þannig að það er ekki svo að hér sé um einhverja breytingu að ræða til að hægt sé að sleppa við það að koma Mannréttindastofnun Íslands á laggirnar.

Hv. þingmaður spyr mig líka: Eru líkur á því að við klárum málið um mannréttindastofnun? Ég legg ríka áherslu á að við klárum málið um mannréttindastofnun. Þetta er gríðarlega mikið hagsmunamál fyrir fatlað fólk, fyrir mannréttindi almennt á Íslandi, fyrir ýmiss konar málefni sem snúa að hatursorðræðu, jafnrétti kynjanna, jafnrétti fólks óháð uppruna o.s.frv. og auðvitað líka í tengslum við lögfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem við höfum oft rætt hér í þessum sal og ég veit að er metnaðarmál bæði mín og hv. þingmanns að nái fram að ganga.