réttindagæsla fyrir fatlað fólk.
Forseti. Ekki nóg með að þetta frumvarp hafi að geyma ákvæði sem áður voru í frumvarpi um Mannréttindastofnun Íslands heldur er vísað til þess frumvarps sem fyrirrennara frumvarpsins á fyrra þingi. Ég hvet hæstv. ráðherra til að leiðrétta það þá á vef Alþingis, ég held að það séu breytingar á 7. gr. laganna, nánar tiltekið, þar sem er um nokkurn veginn samhljóða ákvæði að ræða m.a. þótt það sé búið að bæta einhverjum ákvæðum við. Þetta er alveg skýrt.
Mér þykir alltaf áhugavert að heyra þingmenn og ráðherra ríkisstjórnarinnar tala eins og þau séu ekki í ríkisstjórn. Hæstv. ráðherra talar um að honum þyki mikilvægt að Mannréttindastofnun Íslands verði komið á fót. Ég held að það sé öllum skýrt og spurningin mín laut ekki að því. Hún laut að því hvort hæstv. ráðherra teldi líklegt að það yrði að veruleika, annars vegar vegna þess samkomulags sem hefur náðst innan ríkisstjórnarinnar um það hvaða mál verða látin fara alla leið í gegnum þetta þing og hins vegar í ljósi þess að ráðuneyti mannréttinda hefur núna verið sett í hendurnar á þeim flokki sem hefur kannski verið allra síst (Forseti hringir.) spenntur fyrir því. Væntanlega hefur hæstv. ráðherra verið meðvitaðir um það þegar sú breyting var ákveðin.