réttindagæsla fyrir fatlað fólk.
Forseti. Ég vil byrja á að taka það fram að ég styð allar þær góðu breytingar og þær framfarir sem eru að verða á þessu kerfi með þessum lagabreytingum, svo það fari ekki á milli mála. Ég ætla aðeins að fá að halda áfram með leiðindi sem ég var með í andsvari við hæstv. ráðherra rétt áðan varðandi það sem ég fæ ég ekki betur séð en að sé uppskipting frumvarps sem hefur einnig verið lagt fram af hálfu þessarar ríkisstjórnar um Mannréttindastofnun Íslands, þar sem gefur að líta breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem eru einmitt í þessu frumvarpi sömuleiðis. Ég verð að óska eftir því að hæstv. ráðherra veiti mér örlitla athygli þar sem ég ætla að óska eftir viðbrögðum hans við þessu þar sem hann vændi mig um ósannsögli hérna uppi í pontu Alþingis rétt áðan, en í frumvarpi til laga um Mannréttindastofnun Íslands eru m.a. breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sömu ákvæðum og í þessu frumvarpi. Reyndar vekur athygli mína við nánari skoðun að breytingarnar eru ekki samhljóða. Mér þykir líklegast, og ég óska þess að hæstv. ráðherra leiðrétti mig ef sú kenning er röng, að frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands hafi kannski verið samið áður og svo hafi verið farið út í nánari lagfæringar á þessum lögum, eða öfugt, og þar hafi kannski orðalagið ekki verið hið sama að endingu. Mig langar því að beina þeirri spurningu að nýju til hæstv. ráðherra hvort ástæðan fyrir því að þessar breytingar eru lagðar til hér sérstaklega í þessu frumvarpi, að því er virðist sömu breytingar og eru í frumvarpi til laga um Mannréttindastofnun Íslands, hvort þetta sé einhver vísbending um að ekki standi raunverulegur vilji hjá ríkisstjórninni allri sem heild, og meiri hlutanum sem hana styður, til að afgreiða frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands á þessu löggjafarþingi og því hafi verið brugðið á það ráð að setja þessar breytingar, sem eru sannarlega brýnar og ég geri ráð fyrir að sé kannski meiri samstaða um, í þetta sérstaka tiltekna frumvarp. Ég beini þeirri spurningu til hæstv. ráðherra.
Þá langar mig að ræða aðeins nánar um þau skref sem er verið að stíga með þessum lögum sem sannarlega samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er ætlað að styðja við það að Ísland uppfylli þær skuldbindingar sem Ísland hefur nú þegar undirgengist með því að samþykkja samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hins vegar hefur verið bent á það ítrekað að það þurfi að ganga lengra til þess að við getum uppfyllt allar okkar skuldbindingar þar og þar á meðal er sjálfstæð mannréttindastofnun. Hæstv. ráðherra talaði um það hérna áðan að hann væri mjög hlynntur því að við settum slíka stofnun á fót en svaraði því ekki til hvort hann teldi líkur á að það yrði gert í hans ríkisstjórn sem ég geri þá ráð fyrir að honum sé fullkunnugt um hvort sé tilfellið eða ekki.
Annað sem kemur í veg fyrir það að við séum að uppfylla okkar lagaskyldur samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er lög um, hvað eigum við að segja, frelsissviptingu fatlaðs fólks. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er tekið fram að það megi ekki loka fólk inni vegna fötlunar sinnar. Það er hins vegar auðvelt að halda því fram, færa rök fyrir því og sýna fram á það að með lögum m.a. um lögræði og annarri löggjöf sem er gildandi hér á landi, og framkvæmd sem á sér ekki stoð í lögum, er í raun verið að frelsissvipta fólk vegna fötlunar sinnar og það sem mér er kannski efst í huga akkúrat núna á þessu augnabliki er fólk sem glímir við geðfötlun. Þar er auðvitað brýnt að gera miklar breytingar sem ég veit ekki til þess að standi til og ég hef svo sem fengið þau svör frá þessari hæstv. ríkisstjórn að það sé ekki til umræðu alla vega að stefna að því að útrýma nauðung og annarri frelsissviptingu í heilbrigðisþjónustu við fólk með geðræn vandamál, sem er mjög miður, ég verð að játa það. Þess væri óskandi að þessi ríkisstjórn hefði dug til að ganga lengra í að samræma löggjöf okkar alþjóðlegum skuldbindingum sem við erum nú þegar búin að undirgangast. Þetta snýst ekki um það að við tökum á okkur meiri skuldbindingar en við höfum þegar gert heldur einfaldlega að við uppfyllum þær sem við þegar gerum.
Alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar kveða á um lágmarksréttindi. Þetta eru ekki lúxusréttindi. Þetta eru lágmarksréttindi sem gríðarlega margar þjóðir hafa lýst sig reiðubúnar til að taka á sig þrátt fyrir ýmsar aðstæður í þeim fjölmörgu ríkjum sem hafa tekist þetta á hendur. Ísland stendur mjög vel í alþjóðlegu samhengi, fjárhagslega og á margan annan hátt, og ætti því að hafa alla burði til þess að uppfylla þessar skuldbindingar sínar með sóma. Það er kannski það helsta sem ég myndi vilja sjá.
Við eigum eftir að sjá síðan þær umsagnir sem munu koma um þetta mál sérstaklega en það er auðvitað ekki hægt að ræða þetta án þess að setja það í samhengi við frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands sem er vitnað til í greinargerð með þessu frumvarpi og þau hanga dálítið saman þó að hæstv. ráðherra hafi verið skýr um það í máli sínu hérna rétt áðan að þau væru þó ekki háðari hvort öðru en svo að hægt væri að samþykkja þetta frumvarp en ekki hitt. Það er sannarlega ánægjuefni að því leyti að ég skil hæstv. ráðherra þannig að það sé samstaða innan ríkisstjórnarinnar um þetta mál. Það vekur hins vegar upp áhyggjur af því að samkomulag sem hefur verið gefið í skyn að hafi alla vega áður ríkt innan ríkisstjórnarinnar um að koma hér á fót sérstakri mannréttindastofnun sé ekki lengur fyrir hendi af einhverjum ástæðum. Ég get alveg sýnt því skilning að hæstv. ráðherra sé ekki reiðubúinn að fara djúpt í saumana á því hér uppi í pontu Alþingis, enda getur verið um viðkvæmar málamiðlanir að ræða og annað slíkt, en það er auðvitað mjög miður þar sem alla vega frá mínum sjónarhóli séð og margra annarra, ef marka má skoðanakannanir, þá hefur Vinstrihreyfingin – grænt framboð gengið með ansi skarðan hlut frá borði í þeim málamiðlunum og þeim samningaviðræðum sem hafa átt sér stað innan þessarar ríkisstjórnar. Nú síðast sló auðvitað botninn úr þegar sjálft ráðuneyti mannréttinda var sett í hendurnar á þeim flokki sem ég ætla kannski að leyfa mér að segja að hafi sýnt minnstan áhuga á þeim málaflokki sem slíkum af þeim flokkum sem mynda þessa ríkisstjórn og beinlínis talað gegn því að setja á fót sérstaka mannréttindastofnun. Þetta vekur auðvitað miklar áhyggjur af þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er á og Vinstrihreyfingin – grænt framboð ekki síst, þótt það sé auðvitað þeirra mál svo sem.
Ég ætla svo sem ekkert að ganga lengra með þetta akkúrat í augnablikinu. Ég vona að hæstv. ráðherra gefi sér augnablik til að svara áhyggjum mínum að einhverju leyti eftir því sem honum er fært. Svo vil ég harma það að hér í þingsalnum sé ekki hæstv. forsætisráðherra til að ræða þetta mál þar sem þessi mál eru mjög nátengd, mál sem eru á hans könnu, þ.e. frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands. Mér hefði þótt sómi að því ef hann hefði séð sér fært að vera hérna til að ræða þetta við okkur og svara ákveðnum spurningum þar að lútandi sömuleiðis.