sjúkraskrár.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég held nefnilega að það sem réttindagæslumenn fatlaðs fólks eru að reyna að benda á í umsögn sinni og kristallast í þeim athugasemdum sem þeir gera, er að það sé ákveðið, eins og ég nefndi í ræðu minni hér áðan, kerfislægt vanmat á mikilvægi þess að fólk njóti sjálfsákvörðunarréttar. Ég held að þetta komi gjarnan til. Þetta er víða í kerfinu. Þetta er ekki eingöngu gagnvart fötluðu fólki. Þetta er í rauninni gagnvart öllu fólki sem með einhverjum hætti stendur frammi fyrir einhverjum áskorunum við að bera hönd fyrir höfuð sér og tryggja sín réttindi. Það er mikil áhersla lögð á að hjálpa og aðstoða og annað slíkt, tryggja vernd og umhyggju, og í þessu, sem er að sjálfsögðu mjög gott, göfugt og mikilvægt, tapast kannski fókusinn á möguleika fólks til þess að taka ákvarðanir fyrir sjálft sig og týnist kannski svolítið í umhyggjunni. Ég held að þetta sé hugarfarsbreyting sem við þurfum að vinna mjög ötullega að og ég fagnaði einmitt þessum breytingum sem eru gerðar á lögunum. Það sem gerist með þessum breytingum sem eru gerðar í kjölfar athugasemda réttindagæslumannanna er í rauninni það að skýrt er betur út hvaða vald sé í rauninni verið að taka af fólki, í hvaða tilgangi og svo aftur hverjum er hægt að fela þetta vald.