sjúkraskrár.
Forseti. Já, það er sannarlega vandamál sem verið er að reyna að leysa með þessu frumvarpi. Það er rétt að taka fram að margir aðilar fagna því og telja þetta framför. Það sem réttindagæslumenn fatlaðs fólks hafa verið að benda á er í rauninni þetta viðhorf. Ég ætla rétt að lokum að tæpa aðeins á lokaorðunum í þeirra umsögn, með leyfi forseta:
„Við vinnu frumvarpsins virðist misbrestur hafa verið á því að skilja almennar meginreglur samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skv. 3. greinar hans — þ.e. „virðing fyrir eðlislægri reisn, sjálfræði einstaklinga, þ.m.t. frelsi til að taka eigin ákvarðanir, og sjálfstæði einstaklinga“ — og þá mannréttindamiðuðu nálgun á fötlun sem gerir ráð fyrir innleiðingu studdrar ákvarðanatöku (supported decision-making model) í stað staðgengilsákvarðanatöku […] þegar fatlað fólk nýtir löghæfi sitt og öryggisráðstafanir því til verndar.“
Það eru sannarlega ábendingar í þessari umsögn sem þyrfti að taka lengra. Það er verið að taka skref í rétta átt og þessar breytingar sem hafa verið gerðar í kjölfar umsagnanna eru til bóta, en ég vona að hæstv. ráðherra haldi þessari umsögn til haga í þeim tilgangi að vinda ofan af þessum kerfislægu fordómum sem eru í kerfinu hjá okkur.