154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkraskrár.

906. mál
[18:01]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma upp í þetta andsvar og ég fagna því alltaf þegar fleira og fleira fólk gerir sér grein fyrir því og tekur þátt í umræðu um það hversu mikilvæg aðgengismál eru. Því miður — og nú er ég ekki einhvern veginn að beina þessu til hv. þingmanns, alls ekki — því miður er það bara of oft þannig að við ræðum ekki mikilvægi aðgengismálanna nema þegar við erum að gera breytingar til þess að laga eitthvað sem var óaðgengilegt fyrir, vegna þess að það hafði ekki verið hugað að þessum málum í upphafi. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er í rauninni stórmerkilegur hvað það varðar að hann veitir ekki fötluðu fólki nein ný réttindi. Hann er bara að skrifa það út hvernig er hægt að veita fötluðu fólki þau réttindi sem það á nú þegar en hafa ekki komist til framkvæmdar. Þess vegna er það svo mikilvægt að við öll, ráðamenn en líka bara við öll í samfélaginu, þekkjum samninginn og inntak hans og hugsum um þessi mál alltaf, í öllum málum sem við erum að vinna að. Einhvern tímann í framtíðinni verður það vonandi þannig að einhver hristi hausinn og spyrji: Bíddu, þurftum við að búa til svona samning? Af því að þetta er bara komið inn í þankaganginn. En það er því miður talsvert mikið langt í að svo verði og þess vegna verðum við sem viljum tryggja aðgengi allra að samfélaginu að taka þessar umræður alltaf og í sem flestu og ólíkustu samhengi.