154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkraskrár.

906. mál
[18:03]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni samtalið. Við erum auðvitað hjartanlega sammála hér þó að þetta kallist andsvar. Það er einmitt áhugavert að sjá að alþjóðasamfélagið og við mannfólkið höfum gert ákveðið samkomulag um grundvallarmannréttindi sem eiga að gilda fyrir allt fólk en einhvern veginn hefur það samt sem áður þróast þannig að nauðsyn hefur borið til að setja sérstaka samninga um, ef ekki bara alla helstu minnihlutahópa sem ég held að hinum almennu samningum hafi upphaflega verið ætlað að vernda. Þess má geta að auðvitað hafa ótrúleg mannréttindabrot átt sér stað eftir að þessir samningar voru allir fundnir upp og annað. Við höldum því bara áfram að hamra á öllum þessum grundvallarréttindum, sérstaklega þegar kemur að minnihlutahópum, þangað til að sá dagur kemur að þau fari að vera okkur jafn sjálfsögð og það að draga andann.