154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkraskrár.

906. mál
[18:05]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka aftur andsvarið og ætla bara að biðja hæstv. heilbrigðisráðherra að virða það við mig að við erum kannski komin svolítið frá málinu sem hann var að mæla fyrir en þetta skiptir samt máli í hinu stóra samhengi og það skiptir máli að við séum að ræða þetta hér á Alþingi.

Mig langar í kjölfar þessarar umræðu að ítreka það sem ég hef oft sagt, að mjög oft þegar við erum að ræða mál sem snúa að réttindum fatlaðs fólks þá kemur upp umræða, allir vilja fötluðu fólki vel og bætt réttindi þess en — og nú er ég heldur ekki að beina þessu til hv. þingmanns sem ég er í andsvari við heldur tel ég bara mikilvægt að nefna þetta almennt — svo er stundum í aðra röndina talað um að einfalda regluverk, að stytta ferla. Þetta getur stundum orðið einmitt til þess að þeir ferlar sem hafa verið settir inn, til að mynda til að tryggja aðgengi — og ég ætla bara að nefna hér það sem vonandi öll eru að hugsa, sem er byggingarreglugerð — þá einhvern veginn í því samhengi er fólk alveg til í að segja bara: Já þetta er svo dýrt, við þurfum einhvern veginn að útþynna þetta. En það er einmitt þá sem hættan er á að réttindi fólks séu fyrir borð borin. Það hefur stundum verið sagt að byggingarreglugerð hafi til að mynda verið sett til þess að standa vörð um hagsmuni og heilsu fátæks fólks með því að tryggja gott húsnæði en það á ekki síður við (Forseti hringir.) þegar kemur að því að fatlað fólk geti nýtt sér það húsnæði sem er byggt.