154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkraskrár.

906. mál
[18:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Það er kannski synd að vera að koma hingað upp í ræðu í lokin en ég stóðst ekki freistinguna í ljósi þeirrar umræðu sem var í andsvörum á milli hv. þingmanna sem tóku þátt í umræðunni, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. Ég vil þakka fyrir þessi innlegg. Það er oft þannig í 1. umræðu, eins og hér, að ráðherra reynir að draga fram meginefni frumvarps og koma því til skila. Ég verð að segja að það innlegg sem hefur komið inn í 1. umræðu er mjög mikilvægt og ég vil bara árétta það og beina til hv. velferðarnefndar að taka tillit til þeirra atriða sem voru dregin fram og út fyrir efni frumvarpsins. Mér fannst þau atriði sem voru dregin fram um aðgengi, sjálfsákvörðunarréttinn, um það að skipta um skoðun og afturköllun og ýmis atriði sem í gegnum þétt samráð voru dregin fram og bætt við málið áður en það kom hingað inn í þingið, mér fannst það einmitt hafa komið alveg ótrúlega vel fram og verið mikilvægt hér í 1. umræðu og sett inntak og efni í mun raunhæfara samhengi.