sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, um ýmsar breytingar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur m.a. fram að Sjúkratryggingar Íslands verði efldar sem kaupandi og kostnaðargreinandi heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins. Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar sem eru í samræmi við þetta markmið með það fyrir augum að veita Sjúkratryggingum Íslands skýrari heimildir til að geta sinnt lögbundnum skyldum sínum sem umsjónaraðili sjúkratrygginga landsmanna og kostnaðargreinanda heilbrigðisþjónustunnar.
Hér eru einnig lagðar til breytingar á tilteknum ákvæðum sem varða réttindi sjúkratryggðra. Ber þar fyrst að nefna að lagt er til að biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verði styttur verulega. Biðtími eftir sjúkratryggingu og þar með þeim réttindum sem felast í greiðsluþátttöku sjúkratrygginga er í dag sex mánuðir eftir flutning til landsins, nema einstaklingur geti t.d. sýnt fram á að hafa haft sjúkratryggingu í öðru EES-ríki. Þessi biðtími er langur og felur í sér óhagræði fyrir þá einstaklinga sem flytjast hingað til lands og eiga ekki rétt á sjúkratryggingu þegar í stað. Er því lagt til að biðtíminn verði styttur niður í þrjá mánuði sem yrði töluverð réttarbót fyrir þá einstaklinga sem um ræðir, sem myndu þannig öðlast rétt til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga mun fyrr en nú gildir.
Til að mæta kostnaði sem hlýst af þeirri breytingu er lagt til að réttur til endurgreiðslu vegna kostnaðar sem einstaklingar verða fyrir vegna veikinda og slysa erlendis verði takmarkaður, sem kemur mikið til vegna veikinda og slysa sjúkratryggðra á ferðalögum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þessi almenni réttur til greiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis þekkist ekki hjá hinum Norðurlandaþjóðunum enda einstaklingar flestir tryggðir fyrir kostnaði vegna veikinda og slysa í gegnum einkatryggingar í slíkum tilvikum, t.d. kreditkortatryggingar. Í frumvarpinu er lagt til að réttur til greiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis verði takmarkaður við afmarkaðan hóp sjúkratryggðra, svo sem námsmenn, veikist þeir eða slasist í námsríki.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði veittar skýrari heimildir til að taka ákvörðun um það hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi. Lög um sjúkratryggingar miða nú við að einstaklingur sé sjúkratryggður á grundvelli lögheimilisskráningar hér á landi. Hins vegar eru dæmi um að einstaklingar haldi lögheimilisskráningu sinni hér eftir flutning úr landi og njóti þannig áfram greiðsluþátttöku ríkisins vegna heilbrigðisþjónustu og annarra réttinda sem sjúkratryggingar veita án þess að greiða í sameiginlega sjóði á Íslandi. Í frumvarpinu er því lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði heimilt að leggja mat á raunverulega búsetu sjúkratryggðs, svo sem á grundvelli upplýsinga frá skattyfirvöldum. Sýni gögn fram á raunverulega búsetu hér á landi heldur sjúkratryggður sínum réttindum, en ella er réttur til sjúkratryggingar felldur niður.
Meðal annarra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu er að lögfesta sérstaklega skyldu Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanir sínar á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. Þessum viðmiðum hefur að sjálfsögðu verið fylgt í starfsemi stofnunarinnar en æskilegt er að lögin mæli með skýrum hætti á um að þessi atriði gildi við alla ákvörðunartöku hjá Sjúkratryggingum. Hér er einnig lögð til breyting á notkun hugtaka í lögunum og þá helst að hugtakið „réttindagreiðslur“ verði notað í auknum mæli í stað hugtaksins „bætur“. Orðið réttindagreiðslur hefur verið notað um árabil í starfsemi Sjúkratrygginga Íslands og þykir lýsa betur þeim réttindum sem sjúkratryggðir eiga og varða til að mynda endurgreiðslu á útlögðum kostnaði.
Virðulegi forseti. Frumvarpinu er jafnframt ætla að breyta ýmsum öðrum ákvæðum laganna eða festa í lög atriði sem lögin hafa ekki mælt fyrir um áður. Í því sambandi má nefna að lögin hafa ekki mælt sérstaklega á um gildandi rétt til þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis vegna of langs biðtíma hérlendis. Hér er því lagt til að mæla sérstaklega fyrir um þennan rétt í lögunum. Þá er lagt til að festa í lög rétt Sjúkratrygginga Íslands til að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu á grundvelli svonefndra fjármögnunarlíkana sem notuð hafa verið til að reikna út greiðslur til heilsugæslna.
Í frumvarpinu eru ákvæði um miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn og miðlægan lyfjagreiðslugrunn einnig tekin til endurskoðunar og tilteknar breytingar lagðar til svo Sjúkratryggingar Íslands hafi fullnægjandi upplýsingar til að reikna út greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Að því er varðar lyfjagreiðslugrunn varða breytingar nánari útfærslu á þeim upplýsingum sem skal skrá í grunninn, svo sem lyfjakostnað, lyfjanotkun o.fl. Tillögur um breytingar á ákvæðum um miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn eru m.a. til komnar vegna innleiðingar á þjónustutengdri fjármögnun sjúkrahúsa, en hér er lagt til að skráðar verði upplýsingar um meðferðir og legutímabil sjúklinga, svo dæmi séu tekin.
Breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða einnig vinnslu persónuupplýsinga hjá Sjúkratryggingum Íslands og miðlun upplýsinga um biðlista. Hér er lagt til að Sjúkratryggingum verði heimilt að kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum um einstaklinga á biðlista, m.a. frá embætti landlæknis. Vegna framkvæmdar samninga um þjónustutengda fjármögnun er lagt til að Sjúkratryggingum verði heimilt að kalla eftir upplýsingum úr heilbrigðisskrám embættis landlæknis um veitta meðferð og öðrum upplýsingum til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu í tengslum við framkvæmd og greiðslur. Loks er lagt til að skýra betur heimildir Sjúkratrygginga Íslands um vinnslu persónuupplýsinga í 50. gr. laganna.
Hæstv. forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins og leyfi mér því að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.