sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa framsögu. Ég viðurkenni að ég er ekki búin að lesa málið í þaula en ég hnýt um 9. gr. frumvarpsins þar sem er, ef ég skil þetta rétt, í rauninni verið að færa inn í þessi lög það sem hingað til hefur verið virt, þ.e. að ef biðtíminn er of langur hér á landi þá greiði íslenska ríkið fyrir slíka meðferð erlendis, innan EES-svæðisins. Það er sérstakt áhugamál mitt að við bætum meðferð við fíknisjúkdómum og ég hef lagt það til að sá sjúkdómur og slíkar meðferðir myndu líka falla undir þetta ákvæði. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Telur hann að með þeim breytingum sem hér liggja fyrir verði hægt að opna á þann möguleika að ef biðlistar eru langir og íslenska heilbrigðiskerfið getur ekki komið til móts við einstaklinga með fíknisjúkdóma, þá geti þeir leitað meðferðar erlendis hjá þar til hæfum viðurkenndum stofnunum og fengið greiðsluþátttöku frá Sjúkratryggingum?