sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir spurninguna sem lýtur að 9. gr. Þar erum við að gera breytingu á 23. gr. laganna sem fjallar um aðra sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Hv. þingmaður spyr um og tekur undir þann skýlausa rétt sem er að finna um það að ef biðtími er of langur þá virkist greiðsluþátttaka í meðferð erlendis. Hv. þingmaður kemur hér inn á fíknimeðferðir og ég þori ekki að fullyrða um hvort akkúrat sú breyting sem hér liggur fyrir þar sem er verið að árétta þennan rétt — en þessi réttur er skýlaus samkvæmt Evrópureglugerð sem hefur verið stuðst við. Ég ætla ekki að fullyrða um það, af því að það er ekki fjallað um það beinlínis í breytingunni í greininni, öðruvísi en að hafa þá lögin líka fyrir framan mig, ég verð að játa það. En hér er vissulega verið að setja lagastoð fyrir þessum skýlausa rétti sjúklinga.