sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég átta mig á því að þetta er kannski svolítið tæknileg spurning en ég hnaut um þetta. Ég hef rætt um það í þessum ræðustól að ég held að það sé ofboðslega mikilvægt, í ljósi þess að við virðumst ekki eiga nægjanlega mikið af meðferðarúrræðum hér á Íslandi, að það verði opnað á þann möguleika að fólk geti líka sótt slík meðferðarúrræði erlendis. Ég spurði þessarar spurningar þegar við í hv. velferðarnefnd fórum í heimsókn niður í Sjúkratryggingar og ég fékk það svar að slíkar meðferðir hafi ekki verið niðurgreiddar. Nú átta ég mig ekki á því hvort það séu lögin eða reglugerðin en þar sem ég er svo lánsöm að sitja í hv. velferðarnefnd mun ég óska eftir því að ráðuneytið skoði það með mér hvort þessi grein muni opna á það eða hvað við myndum þá mögulega þurfa að gera til að hægt væri að opna á það. Þá leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðherra um hvaða afstöðu hann hefði til þess. Ég tel nefnilega að þegar þessi evrópska reglugerð var tekin upp hér á landi og opnaði á þennan möguleika — sem vissulega hefur á tímum verið gagnrýndur því að við höfum auðvitað verið að greiða töluvert mikinn kostnað oft af því að senda fólk út í aðgerðir sem mögulega er hægt að gera hérna heima. En ég held að við búum núna við það að í framhaldi af því höfum við fengið jafnvel betri heilbrigðisþjónustu hérna heima, með svona smá samkeppni, því að ég hef trú á því, og við séum þar af leiðandi að veita betri þjónustu eftir að við innleiddum þá reglugerð. Og ég hugsa að það sé bara gott að hafa lagastoð fyrir því. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann hafi eitthvað skoðað meðferðarúrræði fyrir fíknisjúklinga og möguleika á þátttöku íslenska ríkisins í að greiða heilbrigðiskostnað sé sú þjónusta sótt erlendis og/eða hvernig honum hugnist að við myndum skoða það í meðförum nefndarinnar.