154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkratryggingar.

908. mál
[18:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni spurninguna. Þetta er mikilvægt. Fíknimeðferðir eru auðvitað ekki bara ein fíknimeðferð, þetta eru fjölbreytt úrræði sem við erum að ræða og við erum hér að ganga frá samningum um slíkar meðferðir. Við erum með slíkar meðferðir hjá opinberum stofnunum og líka sjálfstætt starfandi aðilum, sjálfseignarstofnunum. Við þekkjum þessa aðila; SÁÁ, Hlaðgerðarkot, Krýsuvík. Svo erum við að vinna með skaðaminnkandi úrræði; Rauði krossinn og Frú Ragnheiður. Við erum núna með vímuefnastefnuhóp í gangi, við erum með skaðaminnkunarhópi í gangi og við erum að gera mjög margt til að ná utan um þessi mál. Hér erum við að vísa í 9. gr. sem kemur þá sem breytingartillaga við 23. gr. þar sem er verið að festa í lög þessa svokölluðu evrópsku reglugerð sem er biðtímareglugerð.

Já, ég get alveg tjáð afstöðu mína um það að ef biðtíminn hér verður óæskilegur og langt utan þeirra viðmiða sem við setjum okkur um að fá viðeigandi meðferð, og þá verðum við að skilgreina vel hvaða meðferðarúrræði væri um að ræða, þá finnst mér eiga að gilda sömu lögmál um að tækla þennan sjúkdóm eins og aðra. Hér er verið að setja í lögin að staðfesta biðtímann og þá mjög sambærilegar meðferðir sem um er að ræða. Við þekkjum það til að mynda með liðskipti, þar erum við að tala um kannski tveggja ára biðtíma en að þar sem við teljum að sé komið langt utan viðmiða þá sé þessi réttur. Ég held að almenna afstaðan sé jákvæð en við yrðum þá að fara að horfa til þess hvaða meðferð við erum að tala um og hver biðtímaviðmiðin ættu þá að vera.