sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég er að reyna að rekja þetta í frumvarpinu, í hvaða lagagrein hv. þingmaður vísar nákvæmlega. Í greinargerðinni kemur jafnframt fram, með leyfi hæstv. forseta:
„Að mati ráðuneytisins gaf umsögn Persónuverndar ekki tilefni til breytinga á fyrrgreindum ákvæðum. Í umsögninni var vísað til gagnagrunna embættis landlæknis og sjúkratryggingastofnunarinnar en ekki er talið rétt að sameina þá gagnagrunna. Þá er ekki talið óeðlilegt, eins og núverandi kerfi er sett upp, að hliðstæðar upplýsingar séu skráðar hjá ólíkum stofnunum í tengslum við ólík lögbundin verkefni.“ — Og hér er vísað í sérlausnir fyrir hugbúnaðarkerfi ytri aðila.
„Hins vegar voru gerðar breytingar á skýringum við 19, 24. og 29. gr. af því að hv. þingmaður vísaði þar í, en í ljósi athugasemda persónuverndar, það er með útfellingu Atvinnuleysistryggingasjóðs í upptalningu 19. gr. og nánari útskýringar á gildissviði 24. og 29. gr. frumvarpsins.“
Ég skal játa það hér, hv. þingmaður, og þakka fyrir athugasemdina, að ég myndi þurfa að rekja mig aðeins betur í gegnum af hverju það var ekki gert nákvæmlega umfram það sem gert er grein fyrir í greinargerð með frumvarpinu en alveg ástæða til að kanna það frekar.