154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

sjúkratryggingar.

908. mál
[18:36]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið þó að ég skilji hann svo að hann hafi kannski ekki frekari svör en koma fram í greinargerðinni. Í greinargerðinni er því í rauninni ekki svarað hvers vegna ekki er talin ástæða til að breyta orðalagi í lagaákvæðinu, sem sagt að afmarka lagaákvæðið með skýrari hætti, bæði hvað varðar tilgang upplýsingaöflunar og upplýsingavinnslunnar og varðandi eyðingu gagnanna. Það kemur ekki fram. Það kemur í rauninni bara fram, eins og hæstv. ráðherra nefndi, að orðalagi í athugasemdum við frumvarpið hafi verið breytt af þessu tilefni en svo akkúrat að athugasemdirnar hafi ekki þótt gefa tilefni til breytinga á frumvarpinu að öðru leyti, en það er ekki rökstutt að neinu leyti. Ég hef svo sem skilning á því ef hæstv. ráðherra hefur ekki svör við þessu á reiðum höndum akkúrat í augnablikinu. Ég þakka honum fyrir, engu að síður.