154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

mannabreytingar í nefndum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa. Steinunn Þóra Árnadóttir taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti í sömu nefnd sem varamaður í stað Orra Páls Jóhannssonar. Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Steinunnar Þóru Árnadóttur. Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur. Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti sem varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur. Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti í framtíðarnefnd í stað Steinunnar Þóru Árnadóttur. Jódís Skúladóttir taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES í stað Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Eva Dögg Davíðsdóttir taki sæti sem varamaður í sömu nefnd í stað Jódísar Skúladóttur.