154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

árshátíð Landsvirkjunar.

[15:36]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég kýs að beina þessari fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra af því að ég veit að hann hefur mikla reynslu sem stjórnmálamaður og er nýlega búinn að vera ansi lengi í fjármálaráðuneytinu. Við heyrum núna í hádegisfréttum að það var haldið partí á Egilsstöðum um síðustu helgi, partí sem kostar ekki undir 100 millj. kr., þar sem 200 starfsmenn Landsvirkjunar fengu leigða undir sig breiðþotu hjá Icelandair og flugu þangað með mökum sínum; meðalverð á starfsmann 500.000 kr. fyrir tveggja daga partí á Egilsstöðum. Ég velti því fyrir mér, hæstv. forsætisráðherra, hvaða ásýnd er þetta sem við erum að senda út í samfélag sem er að bugast hér undan okurvöxtum og rosalega þröngu búi hjá mörgum fyrirtækjum og heimilum í landinu? Hvers lags skilaboð sendum við fólkinu okkar þegar við í rauninni getum ekki kannski haft á tilfinningunni að við séum að upplifa þetta brjálæði sem geisaði hér fyrir efnahagshrunið 2008, þar sem skiptir engu máli hvað hlutirnir kosta? Eini munurinn þarna er að ég get ekki séð að það hafi verið pöntuð Lady Gaga eða Elton John, en 100 millj. kr. engu að síður fyrir 200 starfsmenn Landsvirkjunar. Talsmaður Landsvirkjunar segir í rauninni að þetta sé kannski út af því að þau hafi verið að vinna upp þarna einhverjar þrjár árshátíðir sem þau hafi misst af út af Covid en þau héldu samt sem áður partí í fyrra í Egilshöll.

Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Eigum við virkilega að senda svona skilaboð? Hver er það sem fer með t.d. stjórn Landsvirkjunar? Er það bara forstjórinn? Er Landsvirkjun fé án hirðis? Á að reka þetta fyrirtæki bara fyrir starfsmennina eins og þeir eigi það bara sjálfir? Er það furða að manni misbjóði? Ég er eiginlega enn þá í hálfgerðu áfalli yfir þessari frétt.