árshátíð Landsvirkjunar.
Virðulegi forseti. Við getum sagt sem svo að öll félög í eigu ríkisins eigi að horfa til almennu eigendastefnu ríkisins vegna félaga í eigu þess. Við segjum í almennu eigendastefnunni að við þurfum að tryggja að menn gangi þannig fram að það stuðli að trausti og trúverðugleika, að menn vinni þannig að samkeppni geti ríkt eftir því sem aðstæður hverju sinni eru á ólíkum mörkuðum, að stuðla að hagkvæmni í rekstri og fjárfestingum að teknu tilliti til hlutverks og áhættu. Ætli við verðum ekki að segja að hérna megi spyrja sig um það hvernig farið er með opinbert fé hvað hagkvæmni snertir. Þetta verður á endanum alltaf að meta eftir atvikum. Hv. þingmaður segir hér að það hafi verið leigð full flugvél. Ef setið er í hverju sæti í slíkri flugvél þá kannski er það ekkert verra en að fljúga margar ferðir með minni flugvélum. En ég verð að segja sömuleiðis fyrir mitt leyti: Mér finnst vera ákveðinn blæbrigðamunur á því að leggja í langferð til Egilsstaða eða fljúga suður til Evrópu til að halda árshátíð. Það er munur á því. En kostnaðurinn sem hv. þingmaður nefnir er verulegur, ég verð að taka undir það, ég get ekki annað. Það er auðvitað verulegur tilkostnaður að efna til árshátíðar sem kostar ef rétt er hér haft eftir í kringum 100 milljónir. Þess vegna segi ég bara almennt til allra félaga í eigu ríkisins og stofnana að við viljum að gengið sé þannig fram að það sé til eftirbreytni. Það er bara svo einfalt.