154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

stefna ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum.

[15:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Við myndun þessarar ríkisstjórnar tók hæstv. forsætisráðherra ítrekað fram að hún myndi ekki hvað síst snúast um þrjú mál sem væru útlendingamál, orkumál og ríkisfjármálin eða efnahagsmálin. Þetta hefur hann ítrekað, eins og ég segi, margoft og sérstaklega að undanförnu lagt áherslu á mikilvægi þess að taka á útlendingamálum. Því spyr ég einfaldlega hæstv. forsætisráðherra: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera í því efni? Er það bara að klára það sem þegar var búið að kynna, frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð eða þingflokkur þeirra hér hefur þegar gert fyrirvara við? Stendur til kannski að klára það sem var kynnt sem sameiginleg stefna ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, sem var nú fyrst og fremst listun á stefnu VG og svo þetta mál, þetta ókláraða mál hæstv. dómsmálaráðherra? Er það allt og sumt? Spurningin er einföld, herra forseti, og nú vek ég athygli hæstv. forseta á því að ég ætla að spara tíma: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera í útlendingamálum?