154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

staðan í heilbrigðismálum.

[15:49]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég óttaðist að þetta væri enn ein vísbendingin um losaralega meðferð hér í þingsal en það er nú gott að það var ekki.

Ríkisstjórnin endurnýjaði heitin aftur í síðustu viku og hún ætlar að leggja áherslu á þrjú mál sem stjórnvöld telja að liggi mest á að laga nú eftir sex og hálfs árs stjórnartíð, þrjú mál sem þau ná samstöðu um. Ég verð að viðurkenna að mér brá töluvert þegar ég áttaði mig á því að heilbrigðisþjónustan komst ekki á blað og það má bara spyrja um raunveruleikatengsl ríkisstjórnarinnar. Almenningur býr við þá stöðu að það er ekki hægt að bóka tíma hjá heilsugæslunni, þessum fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu. Við heyrum sögur af heilsugæslum þar sem er aðeins starfandi einn læknir með mörg þúsund skjólstæðinga. Álagið er gríðarlegt og heilsugæslan hefur verið að keyra auglýsingar þar sem fólk er eiginlega hvatt til þess að koma ekki á heilsugæsluna. Síðan eru nýlegar fréttir um að helmingur heimilislækna séu við mörk kulnunar. Allt þetta segir okkur að það er eitthvað mikið að. Það fer minna af fréttum af því frá stjórnvöldum hvernig eigi að bregðast við. Við heyrum líka ítrekað af slæmri stöðu Landspítalans þar sem spítalinn er að springa, t.d. vegna þess að það er ekkert pláss á hjúkrunarheimilum fyrir þau sem þess þurfa og bráðamóttakan er yfirkeyrð. Þó eru dæmi um að læknar séu að flýja heilsugæsluna til starfa á bráðamóttökunni sem sýnir alvarleika málsins. En heilbrigðismálin rata ekki á forgangslista ríkisstjórnarinnar. Þetta eru köld skilaboð til almennings; heilbrigðismál lenda enn og aftur undir í forgangsröðuninni. Þetta hlýtur að valda hæstv. heilbrigðisráðherra töluverðum vonbrigðum — eða hvað? Er hæstv. ráðherra hæstánægður með stöðu mála? Hefur markmiðum ríkisstjórnarinnar þegar kemur að heilbrigðismálum verið náð?