staðan í heilbrigðismálum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er rétt, hér ríkir pólitísk samstaða um að það þurfi að efla heilbrigðisþjónustuna og þess meiri eru vonbrigðin yfir því hversu hægt gengur. Ég efast um að ríkisstjórninni á þessum hraða myndi duga tíminn til 2030 en þá rennur þessi heilbrigðisstefna út. Það vantar aðgerðir. Við áttum hérna samtal fyrir tveimur mánuðum, ég og hæstv. ráðherra, einmitt um heilsugæsluna og þar sagði ráðherra að það væri verið að vinna í þessum málum. Það eru tveir mánuðir síðan og enn þá er vinnan yfirstandandi. Hvað veldur því að þetta gengur svona hægt? Er það kerfið sem við höfum byggt upp sem gerir það að verkum að þó að sýnin sé skýr og verkefnið ljóst þá bara gengur þetta ekki eftir? Það er ekki nógu gott. Áttum okkur á því að við erum ekki að veita almenningi nægilega góða heilbrigðisþjónustu þegar kemur sérstaklega að þessari fyrsta skrefs þjónustu. (Forseti hringir.)
Ég veit að hæstv. ráðherra ætlaði að fara betur yfir þetta, en þetta gengur of hægt. Og vegna þess að ráðherra talaði um að þetta snerist ekki bara um lækna þá lúta (Forseti hringir.) umkvartanir lækna einmitt að því að þeir fá ekki að vera með til ráðagerða um þessar breytingar sem verið er að vinna. Er læknir starfandi í ráðuneyti hæstv. ráðherra?