tilmæli forsætisnefndar Norðurlandaráðs vegna stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni góða fyrirspurn og get svarað spurningunni með einföldum hætti og sagt: Já, ég er tilbúin að beita mér fyrir því og þykir góður bragur á þessari vinnu forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Við hins vegar sjáum það og finnum, allt frá í raun þeirri dagsetningu þegar hryðjuverkasamtökin Hamas gerðu árás, að um er að ræða ástand þar sem meira að segja samhent Norðurlöndin eiga stundum erfitt með að ná alveg samstilltum tóni. Þegar við horfum framan í það að samþættasta svæði og mestu vinir og bandamenn eiga í erfiðleikum með að slá þann sameiginlega tón þá endurspeglar það gríðarlega flókna stöðu. En af öllu því sem þar er í gangi þá er það nú eitthvað sem við verðum einfaldlega að ráða við og eigum að beita okkur vegna þess að við höfum þar trúverðugleika og Norðurlöndin hvert með sínum hætti. Þau eru með trúverðugleika þegar kemur að þessum málum. Þau eru með ákveðna sérstöðu. Þau hafa beitt sér með mismunandi hætti, Noregur hefur gert það með mjög ákveðnum hætti á ákveðnum svæðum, vegna þess að um er að ræða gríðarlega flókna stöðu. Sumt í þessu er ekki flókið, eins og það hversu hryllilegt ástand þar er, eins og það að það sé ekki í lagi og sé ekki í samræmi við alþjóðalög að hindra til að mynda neyðaraðstoð inn á svæðið. Þetta er algjörlega skýrt og það er algerlega skýrt að alþjóðalögum fylgja ekki bara réttindi til handa löndum. Þeim fylgja líka heilagar skyldur. Þess vegna trúi ég því að Norðurlöndin eigi að geta (Forseti hringir.) slegið þennan sameiginlega tón og við eigum líka að geta beitt okkur og ef ég finn tækifæri til að gera það (Forseti hringir.) í krafti míns embættis þá mun sannarlega ekki á mér standa.