tilmæli forsætisnefndar Norðurlandaráðs vegna stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs.
Herra forseti. Ég er sannarlega þeirrar skoðunar að Norðurlöndin hafi trúverðugleika í þessum efnum og geti lagt sitt af mörkum. En það er alveg hægt að segja að þegar aðstæður breytast og bæði þegar svona meiri háttar bakslag og hryllingur á sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs og við sjáum í raun fleiri og fleiri vísbendingar um að við séum að nálgast frekari ófrið og erum ekki einhvern veginn að taka skrefin inn á rétta braut, þá reynir meira á. Það er flóknara og það er erfiðara að viðhalda trúverðugleika og vera algjörlega samkvæmur sjálfum sér í öllum málflutningi þegar bæði stríð og átök eru að blossa upp á fleiri svæðum um heiminn.
Hér er um að ræða gríðarlega langa hríð, (Forseti hringir.) meiri háttar flókið ástand, en ef eitthvert svæði ætti að geta með trúverðugum hætti gengið í takt (Forseti hringir.) og látið gott af sér leiða þá myndi ég sannarlega flokka Norðurlöndin þar.