154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

byggingarleyfi vegna lagareldis.

[16:04]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Þann 29. febrúar gaf Matvælastofnun út rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi. Umhverfisstofnun fylgdi svo á eftir og gaf út starfsleyfi, enda er leyfum fyrir sjókvíaeldi dreift á margar stofnanir, m.a. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Ástæðan fyrir því að ég ber þetta upp við innviðaráðherra er að sú stofnun sem fellur undir málefnasvið hennar ráðuneytis hefur ekki gefið út byggingarleyfi fyrir umræddri framkvæmd en samt tala forsvarsmenn Arctic Fish opinberlega um að stefnt sé að því að setja út eina til eina og hálfa milljón seiða af frjóum eldislaxi í kvíastæðu við Sandeyri í Ísafjarðardjúpi í maí næstkomandi.

Raunar hefur ekki ein einasta sjókví fengið byggingarleyfi á Íslandi þrátt fyrir að sjókvíar falli sannarlega undir mannvirkjalög. Vegagerðin hefur framkvæmt mat á svæði þar sem Arctic Fish hefur fengið rekstrarleyfi á Arnarnesi og var niðurstaðan sú að ekki væri ásættanlegt með tilliti til siglingaöryggis að leyfa fiskeldi á svæðinu. Einhverra hluta vegna hefur Matvælastofnun hunsað þetta mat algerlega og samt gefið út rekstrarleyfi og mér skilst að það hafi komið Vegagerðinni algerlega í opna skjöldu.

Spurningin mín er í raun og veru frekar einföld. Ég er að óska eftir því að ráðherra útskýri fyrir mér hvernig þetta gerist. Hvernig virkar þetta eiginlega? Er þetta bara villta vestrið? Munu þessi nýjustu áform um stórfelldan umhverfisskaða í Ísafjarðardjúpi ná fram að ganga þvert á lög? Hvernig ætlar ráðherra að beita sér í þessum málaflokki sem nýr ráðherra innviðamála?